View Profile

Valgerður Guðnadóttir

  • 47 ára
  • Leikari & Söngvari

Valgerður Guðnadóttir útskrifaðist frá The Guildhall School of Music and Drama í London árið 2000. Áður hafði hún lokið 8. stigi í söng með láði frá Söngskólanum í Reykjavík.

Valgerður hóf feril sinn sem María Magdalena í Jesus Christ Superstar í Verzlunarskólanum. Í kjölfarið fór hún með hlutverk Dala Völu í sjónvarpsleikritinu Þið munið hann Jörund í leikstjórn Óskars Jónassonar og Maríu í West Side Story í Þjóðleikhúsinu 18 ára gömul.
Síðan þá hefur hún leikið og sungið á ólíkum vettvangi, t.d. hjá Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Leikfélagi Akureyrar, Íslensku Óperunni, Gaflaraleikhúsinu og í sjónvarpi og auglýsingum.
Valgerður lék hlutverk Mömmu klikk í samnefndu leikriti eftir bók Gunnars Helgasonar og hlaut fyrir það tilnefningu til Grímunnar.
Hún lék hlutverk Maríu í Söngvaseið í Borgarleikhúsinu en fyrir það hlutverk hlaut hún Grímuna sem söngvari ársins árið 2009.
Á meðal annarra hlutverka eru Janet í Rocky Horror, Christine Dae í The Phantom of the Opera, Fantine í Vesalingunum, Linda í Gauragangi, Greta Garbo í Halldóri í Hollywood, Reyndar í Leitinni að jólunum, Brynhildur álfadrottning í Benedikt Búálfi, Mara í Hafinu bláa, Papagena í Töfraflautunni, Mercedes í Carmen, og Berta í Rakaranum frá Sevilla. Ásamt leik í fjölda barnaleikrita hefur hún tekið þátt í frumflutningi á verkum eins og t.d. barnasöngleiknum Björt í Sumarhúsi eftir Þórarinn Eldjárn og Elínu Gunnlaugsdóttur. Hún lék jafnframt einleik upp úr verkinu vítt og breitt um landið á vegum List fyrir alla.

Valgerður leikstýrði Hárinu, Gullna hliðinu, Óþvegið! og Níu til fimm hjá Söngleikjadeild Sigurðar Demetz og var ein þáttastjórnenda Alla Leið hjá Rúv 2011.

Á meðal næstu hlutverka Valgerðar eru Melina Cappucio í Framúrskarandi Vinkonu og Gabríella í Sem á himni hjá Þjóðleikhúsinu.

Valgerður hefur komið víða fram sem einsöngvari hér heima og erlendis. Hún hefur margsinnis sungið einsöng með Sinfóníuhljómsveit Íslands t.d. á Klassíkinni okkar - Lögin úr leikhúsinu og á Vínar- og jólatónleikum sem og með Sinfonia Nord í hlutverki Völvunnar í Völuspá eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson.
Hún hefur léð Disney persónum eins og Pocahontas og Litlu Hafmeyjunni rödd sína ásamt ótal fleiri karakterum.

Valgerður hefur þrisvar hlotið tilnefningu til Grímunnar og tvisvar til Íslensku tónlistarverðlaunanna.