View Profile

Erla B. Skúladóttir

  • 66 ára
  • Leikari

Erla útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands og lék hjá Leikfélagi Reykjavíkur, Leikfélagi Akureyrar, Þjóðleikhúsinu, Alþýðuleikhúsinu, Egg leikhúsinu, Svörtu og sykurlausu götuleikhúsinu og Frú Emilíu.
Hún nam látbragðs-og grímuleik í París hjá Jacques Lecoq.
Vann sem aðstoðarkvikmyndatökukona í New York og fór síðan í mastersnám í kvikmyndaleikstjórn og kvikmyndatöku í New York University.
Erla hefur leikstýrt, skrifað handrit, tekið og klippt 12 stuttmyndir. Bjargvættur (Savior), vann til 26 verðlauna á kvikmyndahátíðum um allan heim og var tilnefnd til Eddu-verðlauna fyrir bestu stuttmynd og Erla fyrir bestu leikstjórn 2005
Erla var ein af 40 kvikmyndagerðarmönnum/konum sem var fengin til að gera einnar mínútu stuttmynd í tilefni af 40 ára afmæli RÚV.
Vimeo hlekkur á Plús/mínus: http://vimeo.com/26200344 (aðgangsorð ekki nauðsynlegt)
Vimeo hlekkur á Savior: https://vimeo.com/91861356 (aðgangsorð - hafið samband við Erlu - eskuladottir@nyc.rr.com)

Nánari upplýsingar

Hæð: 176 cmMenntun: Menntaskólinn við Hamrahlíð (Stúdent jól 1975), Háskóli Íslands (Bókmenntafræði 1976-1978), Leiklistarskóli Íslands (Leikkona 1982), Ecole du Mime Jacques Lecoq (Látbragðsleikur 1982-1984) New York University (Master í kvikmyndagerð 2003)Hæfileikar: Söngur, látbragðsleikur, enska, franska