View Profile

Eggert Kaaber
- 59
ára
- Leikari
Eggert Kaaber útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands/ LHÍ árið 1990. Frá útskrift hefur hann leikið og starfað hjá Leikfélagi Akureyrar, Þjóðleikhúsinu, Íslensku Óperunni og ýmsum sjálfstæðum leikhúsum og leikhópum. Hann er einn af stofnendum Stoppleikhópsins sem hefur verið starfandi frá 1995. Ásamt því að leika í hinum ýmsu leiksýningum hefur hann einnig leikið í sjónvarpsþáttum, auglýsingum og bíómyndum.
Árið 2009 hlaut hann Grímuverðlaun með Stoppleikhópnum fyrir leiksýninguna: "Bólu-Hjálmar" svo eitthvað sé nefnt.
Auk þess er Eggert menntaður leiklistarkennari frá LHÍ og hefur hann hlotið ýmsar viðurkenningar og verðlaun fyrir leikstjórn í skólum landsins.