View Profile

Anna Gunndís Guðmundsdóttir

  • 41 ára
  • Leikari

Leikkona - Handritshöfundur - Leikstjóri

Anna Gunndís Guðmundsdóttir útskrifaðist með B.F.A. í leiklist frá Listaháskóla Íslands vorið 2010. Hún starfaði í kjölfarið með sviðslistahópnum SIGNA í sýningunni Die Hundsprozesse í samstarfi við Schauspiel Köln í Þýskalandi og í sýningunni Das Ehemalige Haus á Salzburger Festspiele Austurríki. Hún var á samningi hjá Leikfélagi Akureyrar veturinn 2012-2013 og flutti í kjölfarið til New York þar sem hún útskrifaðist með M.F.A. í handritsskrifum og kvikmyndaleikstjórn frá Tisch School of the Arts við New York University vorið 2018.

Anna Gunndís steig sín fyrstu skref á leiksviðinu hjá Leikfélagi Akureyrar aðeins sextán ára gömul og hefur síðan leikið bæði á sviði, í sjónvarpi og kvikmyndum. Hún fór með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Frost (2012) í leikstjórn Reynis Lyngdal og eitt af aðalhlutverkunum í kvikmyndinni Ég man þig (2017) í leikstjórn Óskars Þórs Axelssonar. Sjónvarpsþættir sem hún hefur leikið í eru Fólkið í blokkinni (2013), Brot (2019), Eurogarðurinn (2020), Svörtu sandar (2022-). Verkefni sem koma út árið 2023 eru Kuldi í leikstjórn Erlings Thoroddsen, Heima er best í leikstjórn Tinnu Hrafnsdóttur og kvikmyndin Einvera í leikstjórn Ninnu Pálmadóttur.

Hún var tilnefnd til Edduverðlaunanna sem besta leikkona í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Frost auk þess að vera tilnefnd í flokknum Best New Nordic Voice á kvikmyndahátíðinni Nordic Panorama fyrir stuttmyndina I Can’t Be Seen Like This.


Anna Gunndís vinnur nú að sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd ásamt 10 þátta sjónvarpsseríu.

Nánari upplýsingar

Hæð: 160

Umboðsskrifstofa

Móðurskipið

Linkar

IMDB