View Profile

Salka Gústafsdóttir

  • 23 ára
  • Leikari & Söngvari

Salka Gústafsdóttir útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands vorið 2025 og lauk áður miðprófi í söng úr Söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz.
Hún þreytti frumraun sína í Þjóðleikhúsinu sem Maríanna í söngleiknum Stormi eftir Unni Ösp og Unu Torfa, vorið 2025. Í vetur leikur hún í Nýtt Eldhús Eftir Máli eftir Friðgeir Einarsson í Þjóðleikhúsinu og situr í ritstjórn Vikunnar með Gísla Marteini auk þess að vera með regluleg innslög. Önnur verkefni eru til að mynda söngleikurinn Með allt á hreinu sem var sýndur í Afturámóti í Háskólabíói sumarið 2026, Vitfús Blú eftir Egil Andrason og Þorskasaga eftir Hafstein Níelsson og Óliver Þorsteinsson.
Hún leikur einnig í stuttmyndinni Lokametrar eftir Arnór Björnsson og Vigni Daða Valtýsson sem kemur út 2026

Nánari upplýsingar

Hæð: 172cmMenntun: Leikarabraut Listaháskóla Íslands

Linkar

Facebook

Showreel