View Profile

Ólafur Ásgeirsson

  • 33 ára
  • Leikari

Ólafur Ásgeirsson (f. 1990) útskrifaðist af Leikarabraut Sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands árið 2015. Ólafur fór í kjölfarið til New York þar sem hann lærði Michael Chekhov leiklistartækni í The Michael Chekhov Acting Studio og spunatækni við UCB spunaskólann. Ólafur hefur leikið í kvikmyndunum Órói (2010) og Taka 5 (2019), auk þess sem hann hefur leikið í fjölda þáttasería, stuttmynda og auglýsinga. Ólafur hefur þar að auki starfað sem leiklistarkennari á öllum skólastigum og hefur síðastliðin 8 ár kennt spuna á vegum Improv Ísland auk þess sem hann sýnir vikulega spunasýningar í Þjóðleikhúskjallaranum. Ólafur hefur skrifað tvö leikrit Tu jest za drogo, sem sett var upp í samstarfi við Borgarleikhúsið 2022 og Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar sem hann skrifaði ásamt Sveini Ólafi Gunnarssyni sem sett var upp í Tjarnarbíói 2023.

Nánari upplýsingar

Hæð: 174 cmMenntun: BA gráða í leiklist frá Listaháskóla ÍslandsHæfileikar: ítalska, franska, pólska

Umboðsskrifstofa

Móðurskipið

Linkar

TwitterIMDB