View Profile

Ásgeir Ingi Gunnarsson

  • 29 ára
  • Leikari

Ásgeir Ingi Gunnarsson útskrifaðist með BA (Hons) leiklistar gráðu frá Arts University Bournemouth í Englandi árið 2020.
Hann setti á svið grínsýninguna The Lost Viking (Týndi víkingurinn) á lokaári sínu í Englandi sem fékk mikið lof.
Ásgeir hefur síðustu ár leikið ýmis hlutverk í bíómyndum, þáttum, auglýsingum sem og á sviði. Hann hefur einnig lengi haft brennandi áhuga á gríni og hefur verið að prófa sig áfram við uppistand og spuna með leiklistinni.

Í vetur lék hann í verkinu Marat/Sade í Borgarleikhúsinu og þar áður má nefna verk eins og Treasure Island (Gulleyjan) sem sett var á svið í Lighthouse leikhúsinu í Poole, Date-a-prisoner.com í Grasshopper leikhúsinu í Poole og The Caucasian Chalk Circle (Kákasíski krítarhringurinn) í Bournemouth.
Meðal hlutverka í kvikmyndum og sjónvarpi má nefna kvikmyndir eins og Plaguepits: The Torture Dead (væntanleg 2024), Tilverur og Topp 10 möst (væntanleg 2024) Þætti eins og Venjulegt fólk 4 og Svörtu Sanda 2 (væntanlegt 2024). Auk fjölda auglýsinga og hljóðupptaka sem og einstaka sinnum góðhjartaða tröllið Tufta fyrir Pilkington Props.

Nánari upplýsingar

Hæð: 198cmMenntun: BA (Hons) Acting, Arts University Bournemouth Hæfileikar: Sviðsbardagi, uppistand, söngur og Köfunarréttindi (PADI Advanced Open water)