Stockfish opnar í dag – margt spennandi framundan!

Í dag þann 19. febrúar opnar ný kvikmyndahátíð Stockfish í Bíó Paradís

Á hátíðinni er boðið upp á fjölbreyttar kvikmyndir og viðburði og má með sanni segja að allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur dagskrá hátíðarinnar á www.stockfishfestival.is . Athugið að enginn aðgangseyrir er inn á viðburði hátíðarinnar. Ekki missa af þessu tækifæri til að njóta veislunnar!

Á meðal áhugaverðra viðburða sem fagfélögin gætu haft gagn og gaman að:

FAMU – Pavel Jech masterclass og handritavinnustofa í Bíó Paradís

Pavel Jech skólameistari FAMU skólans í Prag verður bæði með vinnustofu og masterclass á hátíðinni:

„Tíu brandarar sem munu kenna þér allt sem þú þarft að vita um handritaskrif.“ er yfirskrift fyrirlesturs/masterclass hans föstudaginn 20. febrúar kl. 20:00 í samstarfi við Midpoint prógrammið. Hægt er að skrá sig og sjá upplýsingar á Facebook síðunnihttps://www.facebook.com/events/884627851587610/?ref_newsfeed_story_type=regular

Handritavinnustofa hans verður síðan helgina 20.-21. febrúar.

FAMU tékkneski kvikmyndaskólinn í Prag er einn frægasti kvikmyndaskóli heims og þaðan hafa útskrifast leikstjórar á borð við Miloš Forman, Agnieszka Holland, Emir Kusturica, Věra Chytilová, Jiří Menzel, Goran Paskaljević og Jan Hřebejk – og íslenskir kvikmyndagerðarmenn á borð við Grím Hákonarson, Börk Gunnarsson, Hauk Má Helgason, Hjálmar Einarsson og Þorgeir Þorgeirsson heitinn hafa verið við skólann. Þegar Grímur Hákonarson nam kvikmyndir við FAMU kenndi Jech honum handritagerð og ber Grímur honum vel söguna. „Við unnum mjög vel saman og vorum á svipaðri bylgjulengd. Hann hafði einnig mjög gaman að okkur Íslendingunum, sem drukkum mest og unnum mest. Hann bjó til frasann: „Nú skuluð þig skrifa eins og Íslendingar.“ Ég veit ekki hvort hann er notaður enn.“

Gagnrýnendamálstofa

Hver er staða kvikmyndagagnrýni í dag? Er internetið bölvun eða blessun? Við fáum nokkra valinkunna gagnrýnendur til að ræða þau mál – innlenda sem og erlenda – og fáum bæði innsýn inn í störf reyndra kvikmyndarýna á borð við Peter van Bueren sem og ungra gagnrýnenda sem eru að byrja. Simran Hans kemur fyrir hönd Nisi masa, samtaka sem sjá um að hjálpa ungum gagnrýnendum og ungum kvikmyndagerðarmönnum að koma sér á framfæri. Bíó Paradís, 24. febrúar kl. 12:00.

Evrópa fjárfestir í íslenskri kvikmyndagerð

Í janúar síðastliðnum voru liðin 25 ár síðan Íslendingar byrjuðu að taka þátt í Eurimages, kvikmyndasjóði Evrópuráðsins. Auk þess hefur Media-áætlun Evrópusambandsins verið hornsteinn í fjármögnun, þróun og dreifingu íslenskra kvikmynda og komið að stuðningi við framleiðslu á íslensku leiknu sjónvarpsefni.

Af því tilefni verður haldinn fyrirlestur þar sem Hilmar Sigurðsson, formaður ÍKSA, fer yfir sögu evrópsks fjármagns í íslensku kvikmyndaefni og hvernig Creative Europe áætlunin nýtist íslenskum kvikmyndaframleiðendum í fjármögnun sinna verka. Bíó Paradís, 27. febrúar kl. 12.15.

Uppgötvun úr fortíðinni: Nico á Íslandi

Hin ljóðræna kvikmynd Sárið inní okkur (The Inner Scar) var tekin upp í eyðimörkum hér og þar um heiminn fyrir rúmum 40 árum síðan – þar á meðal á Íslandi. Það sem meira er – hin goðsagnakennda rokkdíva Nico er þar í aðalhlutverki. Uppgötvanir úr fortíðina verða fastur liður á hátíðinni svo lengi sem fjársjóðskortin leiða okkur á rétta braut. Bíó Paradís, 25. febrúar kl 20.30 og 1. mars kl. 18:00.

Samstarf leikstjóra og leikkonu – masterclass

Þau Rachid Bouchareb, leikstjóri og Brenda Blethyn, leikkona hafa unnið saman í tveimur myndum á síðasta áratug. Í bæði skiptin var hann leikstjóri og hún aðalleikkona. Þau ræða það samstarf og hvað þarf til þess að það virki í masterclass á hátíðinni. Bíó Paradís, 23. febrúar kl 16.00 – 17.30. Hægt að skrá sig á viðburðinn á Facebookhttps://www.facebook.com/events/1559044741017627/?ref_newsfeed_story_type=regular&source=1

Úr öskustónni á Óskarinn

Christine Vachon hefur áralanga reynslu af því að framleiða óháðar bandarískar kvikmyndir sem margar hafa sópað til sín verðlaunum, myndir eins og Still Alice, Far From Heaven og Boys Don‘t Cry. Hún mun flytja fyrirlesturinn „From Shoestrings to the Oscars“ þar sem hún fjallar um þær hindranir sem framleiðendur óháðra mynda þurfa að yfirstíga. Eftir myndina verður myndin Safe sýnd. Fyrirlesturinn er í boði Bandaríska sendiráðsins. Bíó Paradís laugardaginn 28. febrúar klukkan 15:00. Hægt verður að skrá sig á Facebook. Sjá síðar áhttps://www.facebook.com/stockfishfilmfestival

Bíóklassík: Sigurður Sverrir Pálsson heiðraður

Íslenski kvikmyndatökumaðurinn Sigurður Sverrir verður í brennidepli í flokknum Bíóklassík – en þrjár myndir hans verða sýndar á hátíðinni 24.-26. febrúar; Land og synir, Tár úr steini og Kaldaljós. Sigurður Sverrir mun sjálfur ræða ferilinn og svara spurningum í lok hverrar sýningar og mun Ásgrímur Sverrisson stjórna umræðum.

Norskir kvikmyndagerðarmenn í kastljósi

Þrír norskir leikstjórar, Bent Hamer, Eskil Vogt og Unni Straume verða sérstakir gestir hátíðar og sýnd verður ein mynd eftir hvert þeirra á hátíðinni auk þess sem þau verða sjálf viðstödd sýningar mynda sinna og svara spurningum áhorfenda eftir sýningar. Sýndar verða myndirnar 1001 Grams eftir Bent Hamer, Blind eftir Eskil Vogt og REMAKE.me eftir Unni Straume. Bent og Eskil verða viðstaddir setningu Stockfish – evrópskrar kvikmyndahátíðar næstkomandi fimmtudag 19. febrúar og verða myndir þeirra sýndar 20.,21. og 24. febrúar. Unni verður viðstödd síðari hluta hátíðarinnar.

Gleðilega hátíð og við vonumst til að sjá ykkur sem flest í Bíó Paradís!

http://stockfishfestival.is/dagskra/