OPNAR ÁHEYRNARPRUFUR FYRIR LEIKARA

Þjóðleikhúsið býður upp á opnar áheyrnarprufur fyrir leikara vegna verkefna á leikárinu 2019-2020. Aðeins koma til greina einstaklingar með leikaramenntun.
 
Prufurnar fara fram á Stóra sviði Þjóðleikhússins mánudaginn 4. mars kl. 14-17. Hver einstaklingur fær 2 mínútur til að kynna sig, með eintali eða öðrum hætti.
 
Viðstaddir af hálfu Þjóðleikhússins verða þjóðleikhússtjóri, leiklistarráðunautur og leikstjórar hússins, auk leikstjóra og listrænna stjórnenda frá öðrum leikhúsum.
 
Skráning fer fram á leikhusid@leikhusid.is, og skulu skráningar hafa borist fyrir lok dags 28. febrúar.