Jólafrí á kontór og jólakveðja til félaga

Skrifstofan verður lokuð frá og með 22.desember.

Við verðum hér aftur þann 29. desember en tökum að venju við tölvupósti og/eða símtali.

Kæru félagsmenn,

Nú þegar árið er að líða undir lok viljum við þakka ykkur fyrir samstöðuna, traustið og samstarfið. Árið 2025 hefur á ýmsan hátt verið krefjandi en jafnframt árangursríkt og margt mikilvægt hefur áunnist í baráttunni fyrir bættum kjörum, fagmennsku og réttindum listafólks.

Við göngum svo inn í nýtt ár með skýra sýn, sterka samstöðu og það eru fjölmörg verkefni fram undan. Markmiðið er ávallt hið sama - að tryggja öruggt og faglegt starfsumhverfi fyrir alla félagsmenn.

Við óskum ykkur og ykkar nánustu gleðilegra jóla og farsæls nýs árs, með þökk fyrir árið sem er að líða og hlökkum til alls þess sem fram undan er.

Jólakveðja f.h. stjórnar FÍL

Birna og Hrafnhildur