Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir

Það er með miklum söknuði sem við hjá Félagi íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum kveðjum kæran félagsmann sem lést langt um aldur fram eftir erfið veikindi. Fyrir hönd FÍL vottum við fjölskyldu og ástvinum Þrúðar Vilhjálmsdóttur okkar dýpstu samúð.

Hér að neðan fylgir andlátstilkynning frá fjölskyldu Þrúðar.

Þrúður Vilhjálmsdóttir leikkona lést á líknardeild Landspítalans sunnudaginn 5. júlí, 53 ára að aldri, eftir snörp og erfið veikindi.

Þrúður fæddist í Reykjavík 31. mars 1973 og ólst að hluta upp í Svíþjóð. Hún útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1997 og lék sama ár Ófelíu í Hamlet í Þjóðleikhúsinu. Á sviði lék hún meðal annars í fjölda sýninga Hafnarfjarðarleikhússins, þar á meðal Sölku ástarsögu, sem og hjá Leikfélagi Akureyrar og víðar. Í kvikmyndum er hún mörgum minnisstæð sem Hófí í 101 Reykjavík, auk hlutverka í Djúpinu, Foreldrum og fleiri myndum. Í sjónvarpi lék hún meðal annars í Ófærð, Broti, Ástríði, Spaugstofunni og Áramótaskaupinu. Eftir hana liggja einnig margar talsetningar og hljóðbækur sem hún ljáði rödd sína. Síðar starfaði hún sem flugfreyja hjá Icelandair og leið vel í því starfi, þar sem einstaklega hlý nærvera hennar og smitandi bros nutu sín til fulls.

Foreldrar hennar eru Anna Ragnhildur Ingólfsdóttir og Vilhjálmur Rafnson, sem er látinn. Stjúpmóðir Þrúðar er Álfheiður Steinþórsdóttir og stjúpfaðir hennar um þrjátíu ára skeið var Bragi Halldórsson. Alsystkini Þrúðar eru Linda Vilhjálmsdóttir og Ingólfur Vilhjálmsson. Stjúpbræður hennar, synir Álfheiðar, eru Andri Björnsson og Arnór Björnsson, sem er látinn. Stjúpsystir hennar, dóttir Braga, er Hrefna Bragadóttir.

Þrúður eignaðist soninn Róbert Vilhjálm Ásgeirsson árið 2000 með Ásgeiri Halldórssyni. Eiginkona Róberts er Ingunn Anna Kristinsdóttir. Eftirlifandi eiginmaður Þrúðar er Halldór Örn Óskarsson, ljósameistari í Þjóðleikhúsinu og síðar verkefnastjóri í Hörpu. Þau hófu sambúð árið 2010 og giftu sig árið 2016. Þau bjuggu alla tíð í hjarta miðborgarinnar, á Lokastíg. Þau nutu lífsins saman af fullum krafti, ferðuðust víða og áttu yndislegar stundir í sumarbústaðnum sínum í Munaðarnesi þar sem kyrrðin og náttúran veittu þeim hvíld og gleði.

Þrúður var falleg að innan sem utan — hlý, sterk og með þá einstöku gjöf að láta fólki líða vel í návist sinni. Söknuðurinn er mikill.

Útför Þrúðar fer fram frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 15. júlí kl. 13.00.