Andlát – Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir leikkona

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, leikkona, er látin. Lilja Guðrún fæddist 7. júlí 1950 á Akranesi, dóttir Ingunnar Valgerðar Hjartardóttur og Þorvaldar Steinasonar.  

8 ára gömul flutti hún með foreldrum sínum á ættaróðalið, Narfastaði í Hvalfjarðasveit, hvar foreldrar hennar tóku við búskap fjölskyldunnar. Um tólf ára aldur fluttist fjölskyldan svo í Kópavoginn og festi þar rætur. Lilja lauk námi frá gagnfræðaskólanum við Lindargötu og síðan tækniteiknun frá Iðnskólanum í Reykjavík. Hún var einn af stofnendum leiklistarskólans SÁL árið 1972 og ein af fáum sem komst í gegnum nálaraugað í inntökuprófi að Leiklistarskóla Íslands. Þaðan útskrifaðist hún 1978.  

Fyrsta hlutverk Lilju í Þjóðleikhúsinu var hlutverk Mörtu í Stundarfriði eftir Guðmund Steinsson árið 1979 undir leikstjórn Stefáns Baldurssonar. Það verk ferðaðist á leikhátíðir víða um heim. Í Þjóðleikhúsinu lék hún hvert burðarhlutverkið af öðru, allt fram til starfsloka við 70 aldur, svo sem Mörtu í Hver er hræddur við Virginíu Wolf, og Höllu í Fjalla-Eyvindi og Höllu. Hún lék einnig burðarhlutverk í uppsetningum Leikfélags Akureyrar og Útvarpsleikhússins og uppsetningum sjálfstæðra leikhópa eins Alþýðuleikhússins og Lab Loka.  

Síðustu tvo áratugina lék hún aðal- og aukahlutverk í fjölda bíómynda og sjónvarpsþátta. Af bíómyndum má nefna myndirnar Börn og Foreldrar í leikstjórn Ragnar Bragason, Okkar eigin Osló í leikstjórn Reyni Lyngdal, Vonarstræti og Óróa eftir Baldvin Z, Strákunum okkar í leikstjórn Róberts Douglas, Sumarlandinu í leiksjórn Gríms Hákonarsonar og Köld slóð í leikstjórn Björns Brynjúlfs en fyrir hlutverk sitt í síðastnefndu myndinni hlaut Lilja tilnefningu til íslensku kvikmyndaverðlaunanna. Þá lék hún fjölda hlutverka í sjónvarpi eins og í Fangavaktinni, Rétti, Mannaveiðum og nú síðast Flateyjargátunni. 

Barátta fyrir réttlátari heimi var Lilju Guðrúnu í blóð borin. Hún var virk í verkalýðsbaráttu, sinnti trúnaðarstörfum fyrir BSRB og SFR (nú Sameyki) og tók þátt í skipulagningu verkfallsviðburða. Þá sat hún á lista Alþýðubandalagsins fyrir alþingiskosningarnar árið 1995. Lilja tók þátt í ýmsum átaksverkefnum svo sem gegn umferðarslysum og fyrir foreldra barna í vímuefnaneyslu, friðargöngum, viðburðum verkafólks og gegn kjarnorkuvá.  Þá átti hún hlutabréf í Hlaðvarpanum, miðstöð kvenna gegn kynferðisofbeldi.  

Lilja Guðrún var fjallkona Íslands á þjóðhátíðardeginum 17.  júní árið 2013, þar sem hún flutti ljóð Péturs Gunnarssonar.  

Dætur Lilju Guðrúnar Þorvaldsdóttur eru Karen María Jónsdóttir f. 10. desember 1975 og Inga Valgerður Henriksen f. 20. maí 1985. 

Útförin verður auglýst síðar

Stjórn FÍL sendir dætum Lilju Guðrúnar og ástvinum innilegar samúðarkveðjur.