Bransadagur Sviðslistanna 30. maí 2025

BRANSADAGUR SVIÐSLISTANNA 2025 Forsalur Borgarleikhússins | Föstudagurinn 30. maí Þema dagsins: Hvert er hlutverk sviðslista á Íslandi? Hvað erum við að gera og hvert viljum við stefna? Dagskrá 09:00 – Móttaka og kaffi Gestir mæta og fá tækifæri til að tengjast 09:30 – Opnun Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Sviðslistamiðstöðvar, setur daginn 09:40 – Tvö sjónarhorn: Hvar stöndum við – og hvert viljum við fara? • Steinunn Knúts-Önnudóttir – Doktor í sviðslistum • Eygló Höskuldsdóttir Viborg – Sviðslistakona og tónskáld 10:10 – Pallborðsumræður: Framtíð sviðslista á Íslandi Hvaða framtíð sérðu fyrir þér – og fyrir hverja? Umsjón: Karl Ágúst Þorbergsson Þátttakendur: • Egill Heiðar Pálsson – Leikhússtjóri Borgarleikhússins • Lovísa Ósk Gunnarsdóttir – Listrænn stjórnandi Íslenska dansflokksins • Magnús Geir Þórðarson – Þjóðleikhússtjóri • Pétur Ármannsson – Listrænn stjórnandi Reykjavík Dance Festival • Opið sæti: Umsjónaraðili getur kallað gesti úr sal til þátttöku í samtalinu 11:30 – Spurningar og þátttaka gesta 12:00 – Hádegismatur Súpa & brauð 13:00 – Tvö sjónarhorn: Hvernig sviðslistir – og fyrir hvern? • Rebecca Hidalgo – Sviðslistakona, listrænn stjórnandi og aðgerðasinni (R.E.C Arts Reykjavik) • Arna Magnea Danks – Leikkona, áhættu leikstýra og kennari 13:30 – Hringborðsumræður: Hvað geta sviðslistir gert? Áhrif og möguleikar sviðslista Umsjón: Steinunn Ketilsdóttir – Danshöfundur og framkvæmdastjóri Dansverkstæðisins 15:30 – Samantekt, skál og spjall |