Aðalfundur FÍL – Ályktun

Fjölmennur aðalfundur Félags íslenskra leikara og sviðslistafólks var haldinn þann 21. janúar.
Á fundinum var Birna Hafstein einróma endurkjörin formaður félagsins til næstu þriggja ára. Aðrir stjórnarmenn eru; Bergþór Pálsson, Eva Signý Berger, Hjörtur Jóhann Jónsson, Katrín Gunnarsdóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir.

Á fundinum voru meðal annars málefni dansara til umræðu en félagið hefur í langan tíma reynt að ná fram viðunandi samningum fyrir dansara í leikhúsum. Það var sterk samstaða og einróma álit fundarmanna að við þetta mætti ekki lengur una og því sendir fundurinn eftirfarandi ályktun;

 

Ályktun frá aðalfundi Félags íslenskra leikara og sviðslistafólks
Haldinn þriðjudaginn 21. janúar 2020 kl. 19.30

Aðalfundur Félags íslenskra leikara og sviðslistafólks lýsir yfir áhyggjum sínum af stöðu dansara og danshöfunda innan þeirra sviðslistastofnana sem njóta stærstu fjárhæða úr sameiginlegum sjóðum landsmanna.
Gróf mismunun á sér stað hvað varðar laun dansara sem njóta lakari kjara en samherjar þeirra á leiksviðinu. Það þarf að ganga til samninga við þennan hóp listamanna. Sviðslistastofnunum ber að virða menntun og reynslu í ráðningum fagfólks og mega ekki mismuna einstaklingum eftir starfssviði eða kyni. Það brýtur í bága við hlutverk stofnananna samkvæmt lögum, samþykktum og yfirlýstri jafnlaunastefnu þeirra.

Jafnframt hvetur fundurinn sviðslistastofnanir til að gera kjarasamninga við danshöfunda á jafnréttisgrundvelli við aðra listræna stjórnendur sviðsetninga.