Umsóknareyðublað Leiklistarsjóður Brynjólfs Jóhannessonar
Inntökubeiðni í FÍL
Síðasti dagur skráningar vegna leikaraprufu Þjóðleikhússins er í dag - 28. febrúar. Hér fyrir neðan er linkur á skráningarblað sem nauðsynlegt er að fylla út.
OPNAR ÁHEYRNARPRUFUR FYRIR LEIKARA Þjóðleikhúsið býður upp á opnar áheyrnarprufur fyrir leikara vegna verkefna á leikárinu 2019-2020. Aðeins koma til greina einstaklingar með leikaramenntun. Prufurnar fara fram á Stóra sviði Þjóðleikhússins mánudaginn 4. mars kl. 14-17. Hver einstaklingur fær 2 mínútur til að kynna sig, með eintali eða öðrum hætti. Viðstaddir af hálfu Þjóðleikhússins verða þjóðleikhússtjóri, leiklistarráðunautur og leikstjórar hússins, auk leikstjóra og listrænna stjórnenda frá öðrum leikhúsum. Skráning fer fram á leikhusid@leikhusid.is, og skulu skráningar hafa borist fyrir lok dags 28. febrúar. ... See more
https://www.facebook.com/1481923252093514/posts/2317894275163070?sfns=mo
OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR LEIKÁRIÐ 19/20 – SAMSTARFSVERKEFNI OG VINNUSTOFUR Tjarnarbíó kallar eftir umsóknum um samstarfsverkefni á komandi leikári. Öll sviðsverk koma til greina. Þau verk sem verða fyrir valinu mynda saman leikárið 19/20 í Tjarnarbíói og fá þar af leiðandi aðgang að ókeypis æfingaaðstöðu, stuðningi í markaðs- og tæknimálum, faglegri ráðgjöf ásamt hlutdeild í miðasölu viðkomandi sýningar. Umsóknin skal innihalda stutta greinagerð um verkefnið, lista yfir þátttakendur, fjárhagsáætlun og ferilskrá umsækjenda. Einnig auglýsir Tjarnarbíó eftir listafólki eða hópum sem hefur áhuga á að vera með vinnustofur (e. Residency) í Tjarnarbíói. Þau fá afnot af rými í húsinu til að vinna í, aðgang að sviðinu þegar það er laust, og skrifstofuaðstöðu með öðrum. Starfsfólk Tjarnarbíós býður fram faglega ráðgjöf og stuðning. Umsókn um vinnustofur skal innihalda stutta lýsingu á því verkefni sem áætlað er að unnið verði ásamt ferilskrá umsækjenda. Umsóknir og allt efni sem þeim viðkemur skal safna í eina pdf-skrá merkta umsokn_2019_[nafn verkefnis] og senda á umsokn@tjarnarbio.is. Umsóknir sem ekki fara eftir umbeðnum kröfum eða í vantar gögn verða ekki teknar til greina. Stjórn MTB velur úr umsóknum í samráði við framkvæmdastjóra. Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 14. febrúar næstkomandi og umsóknum verður svarað ekki síðar en mánuði síðar. Upplýsingar um valferlið má kynna sér á http://tjarnarbio.is/starfid/#verkefnaval. Praktískar upplýsingar: Umsóknir og fyrirspurnir skal senda á umsokn@tjarnarbio.is Umsóknir berist fyrir miðnætti þann 14. febrúar 2019 ... See more
Instagram feed