View Profile

Aðalbjörg Þóra Árnadóttir

  • 44 ára
  • Leikari

Aðalbjörg Þóra Árnadóttir útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ árið 2005 og hlaut MA-gráðu í hagnýtri menningarmiðlun frá HÍ árið 2020. Hún hefur leikið í fjölda sýninga hjá ýmsum leikhópum, Borgarleikhúsinu og Leikfélagi Akureyrar, sem og í sjónvarpi, kvikmyndum og útvarpi. Hún er einn stofnenda 16 elskenda og hefur komið að skrifum, framleiðslu og leik í öllum sýningum sviðslistahópsins. Hún er annar stofnenda leikhópsins Soðið svið og hefur leikið í og komið að framkvæmdastjórn allra verka hópsins. Hún leikur nú í Ástu í Þjóðleikhúsiun og mun leikstýra samstarfsverkefninu Þoku í Borgarleikhúsinu. Hún er einn af listrænum stjórnendum hljóðvappsins Flanerís. Meðal hlutverka í kvikmyndum og sjónvarpi má nefna þætti eins og Ráðherrann, Stella Blómkvist, Brúðkaupið mitt, og kvikmyndirnar Rökkur og Grimmd.

Nánari upplýsingar

Hæð: 174Menntun: Listaháskóli Íslands - leikarabraut. (2005)Hæfileikar: Danska, enska, söngur, dans, gítar.