Eldri fréttir
    LHÍ

    Laugardaginn 12. nóvember næstkomandi verður Opinn dagur í Listaháskóla Íslands,  í húsnæði skólans við Laugarnesveg 91 kl. 11 – 16.  Áhugasömum er boðið að koma í skólann og kynnast starfsemi hans.  Þennan dag verða nemendur og kennarar til viðtals og upplýsingagjafar og til sýnis verða inntökumöppur og kynningar á inntökuferli, verkstæðum og aðstöðu skólans.

    BÍL

    Listalaus dagur 01.11.2011

    Markmiðið með listalausum degi er að minna á hve stóru hlutverki listir gegna í daglegu lífi okkar. Lagt er til að öll list verði sniðgengin þennan dag.


    Eftirfarandi FIMMTÁN BOÐORÐ eru þér til leiðbeiningar:
    1. Ekki fara á listasöfn, hönnunarsöfn, gallerí eða minjasöfn sem geyma listaverk.
    2. Ekki horfa á myndlistarverk, þar með talin málverk, ljósmyndir, höggmyndir og innsetningar, hvort sem er úti sem inni.
     

    1. nóvember næstkomandi stendur til að halda listalausan dag.

    Hugmyndin að baki listalausum degi er að minna á hversu stóran þátt listir spila í okkar daglega lífi og í okkar nánasta umhverfi. Margir líta á list sem sjálfsagðan hlut í umhverfi okkar en gera sér ekki grein fyrir því hvernig hún verður til né hvaðan hún kemur. Með því að hylja, takmarka aðgang að, slökkva á og lækka í öllum þeim listum sem fólk að öllu jöfnu nýtur vonumst við til að vekja athygli á málefninu.

    Eins og gefur að skilja þá er ekki verið að banna listir eða banna alla listframkvæmd eins og verið væri að boða til verkfalls heldur munum við á listalausum degi höfða til almennings með því að biðja um að engra lista verði notið í einn dag. 

    leiklistarsamband

    Aðalfundur Leiklistarsambands Íslands, sem haldinn var 26.september, ályktar eftirfarandi vegna frétta af málefnum Leikfélags Akureyrar að undanförnu:

    Leiklistarsamband Íslands skorar á bæjaryfirvöld á Akureyri að standa vörð um Leikfélag Akureyrar og tryggja áframhaldandi starfsemi þess þrátt fyrir tímabundna erfiðleika í starfsemi félagsins.

    Saga Leikfélags Akureyrar er merk, hún spannar um 100 ár en LA varð að atvinnuleikhús árið 1973, hið eina utan höfuðborgarsvæðisins.  Leikfélag Akureyrar er mikilvæg grein á íslenska leikhústrénu, það hefur verið einn burðarás íslensks leikhúslífs undanfarna áratugi og hefur haft gríðarlegt vægi í menningarmálum utan höfuðborgarsvæðisins. Enginn vafi er á því að leikhúsið hefur oft og tíðum einnig haft mikil áhrif á ferðaþjónustu og mannlíf allt á Eyjafjarðarsvæðinu.

    Formaður

    Kæru félagsmenn

    Í dag er Félag íslenskra leikara 70 ára.  Félagið var stofnað árið 1941 á fundi í Iðnó þar sem saman komu nokkri valinkunnir leikarar.
    Fyrsti formaðurinn var kjörinn Þorsteinn Ö Stephensen, ritari var Haraldur Björnsson og gjaldkeri Lárus Pálsson. 

    Fyrstu árin var félagið eingöngu opið leikurum en síðar var óperusöngvurum, leikmynda – og búningahöfundum og listdönsurum einnig boðin aðild.   Stofnfélagar voru fimmtán en nú, 70 árum síðar, telur félagaskrá FÍL yfir 400 manns. 
    Meginmarkmið félagsins hefur verið frá fyrstu tíð að standa vörð um kjara - og hagsmunamál sviðslistafólks á Íslandi

    nemendaleikhús

    Föstudaginn 23. september frumsýnir Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands Á botninum eftir Maxim Gorkí, í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar.

    Leikritið Na-dné, - Á botninum eftir Maxim Gorkí var frumflutt í Listaleikhúsinu í Moskvu 18. Desember 1902 í leikstjórn Konstantíns Stanislavskís sem lék líka hlutverk Satíns. Ári síðar var það frumsýnt í Berlín og gekk þar um langa hríð fyrir fullu húsi. Fyrsta Norðurlandasýningin mun hafa verið í Fahlström Teater í Noregi 1903.
    Verkið hefur síðan verið leikið reglulega vítt og breitt um veröldina og birst í ótal gerðum fyrir leiksvið, útvarp, sjónvarp og hvíta tjaldið. Frægustu kvikmyndirnar sem byggja á þessu verki eru án efa Les Bas-fonds eftir Jean Renoir frá 1936 og mynd Akira Kurosawa, Donzoko frá 1957.

    02.09.2011
    FÍL_logo

    Agætu félagsmenn

    þá er haustið gengið í garð og starfsemi leikhúsa og leikhúslistamanna um allt land komin af fullt skrið.  Við vonum að allir komi vel undan sumri og séu fullir orku og tilhlökkunar fyrir komandi leikhúsvetri.    Kortasala hjá atvinnuleikhúsunum gengur vonum framar og LOKAL listahátíð er farin í gang með fjölmarga spennandi viðburði sjá www.lokal.is

    08.06.2011
    Gríman

    Nú hafa tilnefningar til Grímuverðlauna verði opinberaðar og má sjá þær hér fyrir neðan.    Hátíðin sjálf verður haldin þann 16. júní nk. í Borgarleikhúsinu og hefur boðsbréf verið sent út til félagsmanna með tölvupósti.   Munið að til að tryggja ykkur miða verður að hafa samband við miðasölu Borgarleíkhússins 5688000.   Bein útsending Stöðvar 2 hefst stundvíslega kl. 19.30 og að lokinni dagskrá í sal verður ball í anddyri leikhússins         

    Góða skemmtun og gleðilega Grímuhátíð!

    24.05.2011
    Golf

    Golfmót listamanna verður haldið öðru sinni fimmtudaginn 2. júní 2011 (uppstigningardag) á Bakkakotsvelli í Mosfellsdal. Ræst verður út af öllum teigum kl. 12:00. 

    Opnað var fyrir almenna skráningu mánudaginn 23.maí og er mótið opið öllum félögum í fagfélögum listamanna og hönnuða.

    Mótið er punktamót og verða veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Þá verða snekkjur í verðlaun fyrir að vera næst holu á par 3 brautum.

    Í mótslok verður verðlaunaafhending með listrænum uppákomum. Mótsgjald er kr 3.500.

    Skráning inn á vef FÍH ww.fih.is

    27.04.2011
    áheyrnarprufa
    Áheyrnarprufa FÍL, FLÍ og leikhúsanna verður haldin  Í DAG  miðvikudaginn 27. apríl kl. 16.15 í Kassanum í Þjóðleikhúsinu.
     
    Þar munu ungir leikarar stíga á svið, flytja eintöl, syngja eða leika saman stutta senu.
     
    Að loknum prufum verður boðið uppá léttar veitingar
     
    Við hvetjum leikstjóra og aðra þá sem ráða leikara til starfa til að koma, kynnast nýju fólki og eiga skemmtilega stund!
    blátt_áfram

    Samtökin Blátt áfram í samstarfi við Pegasus eru að fara að gera nýja auglýsingaherferð gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum á Íslandi. Málefnið er einstaklega brýnt og viðkvæmt og óskum við því eftir allri hjálp sem við mögulega getum fengið. Yfirskriftin fyrir auglýsinguna verður "Er barnið þitt í öruggum höndum?" og munum við sýna börn í aðstæðum með fullorðnum þar sem annars vegar gæti þurft að sýna aðgátar og hins vegar í aðstæðum þar sem foreldrar þurfi að vera meðvitaðir í hverra umsjá barnið þeirra er.
    Í senunum erum við allan tímann með fókusinn á börnin og þeirra viðbrögð ásamt því að klippa stöku sinnum í mjög víð skot.

    margrét_ólafsd

    Margrét Ólafsdóttir, leikkona, er látin, sjötíu og níu ára að aldri. 

    Hún fæddist í Vestmannaeyjum 12. júní árið 1931, og lauk burtfararpróf frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins 1951. Margrét var ein af frumkvöðlum í starfi Leikfélags Reykjavíkur, og fór þar með um 70  hlutverk frá árinu 1953. Auk þess lék hún fjölmörg hlutverk í kvikmyndum, sjónvarpi og útvarpi. Eftirlifandi eiginmaður og nánasti samstarfsmaður Margrétar er Steindór Hjörleifsson, leikari, þau eiga eina dóttur, leikkonuna Ragnheiði Steindórsdóttur.

    Stjórn FÍL sendir Steindóri, Ragnheiði og öðrum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur

    endurmenntun

    Vinnustofa í leikritun
    Ertu með hugmynd að leikriti eða leiktexta sem þig langar til að vinna að? Á framhaldsnámskeiði í leikritun fá þátttakendur tækifæri til að þróa og skrifa leikhandrit sem ætlað er fyrir leiksvið eða útvarp

    Úr heimi leiksviðslistanna
    Er leiklistin sprottin upp úr helgisiðum og iðkun trúarbragða? Hvers vegna er kór í grískum harmleikjum? Hvernig gat kaþólska miðaldakirkjan bæði verið á móti leiklistinni og með henni? Hvers vegna voru engar leikmyndir í leikhúsi Shakespeares? Hvaðan koma fjarvíddarleiksviðið og leiksviðsramminn?

    Börn_í_leikhúsi

    Ávarp Samtaka um barna- og unglingaleikhús á Íslandi á alþjóðlegum leikhúsdegi barna, 20. mars 2011

    Börnin grípa andann á lofti þegar Lilli klifurmús rétt sleppur upp í tré undan fantinum Mikka og skömmu síðar veltast þau um af hlátri þegar Lilli leikur á refinn. Það er gott að vita af því að þó maður sé lítill þá er maður einhvers megnugur. Það er líka gott að eiga einhversstaðar athvarf þar sem hægt er að heyra sögu sem segir eitthvað um lífið sem maður er að reyna að fóta sig í. Og að gleðjast og  fræðast og kannski hræðast pínulítið en þó ekki of mikið. Það er börnum eðlilegt að leika sér og leika og engir áhorfendur eru þakklátari í leikhúsi ef það er gott og áhugalausari ef það er vont. Við ættum að sameinast um að tryggja börnum gott leikhús, þau búa að því alla ævi.

    15.03.2011
    áheyrnarprufa

    Hin árlega áheyrnarprufa FÍL, FLÍ og leikhúsanna verður haldin í Þjóðleikhúsinu miðvikudaginn 27. apríl nk.

    Áheyrnarprufan er eingöngu fyrir menntaða leikara.  Sendið umsókn á fil@fil.is  meðfylgjandi skal vera ferilskrá, hámark 1 bls.    Upplýsingar um nafn, síma, netfang, menntun, reynsla, sem og andlitsmynd verða að vera á feriskrá – allt á einu A4 blaði. 

    Áhugasamir vinsamlegast skái sig í síðasta lagi 11. apríl – ekki verður tekið við umsóknum sem berast eftir þann dag. 

    03.03.2011
    FÍL_logo

    Hér með eru félagsmenn FÍL  boðaðir til Kjaraþings FÍL laugardaginn 12. mars nk. frá kl. 09.30 - 14.00 á Grand Hótel
     
    Tilgangurinn er að fá álit félagsmanna og heyra hugmyndir þeirra um allt sem snýr að kjaramálum félagsins.
     
    Við biðjum áhugasama að skrá sig með því að senda póst á fil@fil.is  og tilgreina í svarinu í hvaða hópi þið hafið áhuga á að vinna svo hægt sé að senda ykkur viðeigandi gögn til að skoða fyrir fundinn.   Vinsamlegast skráið ykkur í síðasta lagi miðvikudaginn 9. mars.
     

    25.02.2011
    íslandsstofa

    Kynningar- og umræðufundur Leiklistarsambands Íslands og aðildarfélaga um Íslandstofu og rannsóknina um stöðu Skapandi greina sem kynnt var 1. desember sl.

    Tækifæri fyrir sviðslistafólk að fá að vita meira um rannsóknina og næstu skref í kjölfar hennar og kynna sér stefnumótun hins nýja vettvangs Íslandsstofu, í þágu listanna.

    Tjarnarbíó mánudagskvöldið 28. febrúar kl 20 – 22

    aurora

    Stjórn Auroru velgerðasjóðs hefur ákveðið að styðja sviðslistir á Íslandi þ.e. leikhúslist, danslist og sönglist  skv. skilgreiningu Leiklistarsambands Íslands um 10 milljónir króna.   

    Með þessum styrk vill Aurora velgerðastjóður stuðla að enn frekari framþróun í sviðslistum með því að styðja framúrskarandi verkefni sem eru listræn, metnaðarfull og unnin af fagfólki
    Miðað er við að verkefnin verði að eiga sér stað innan tveggja ára frá úthlutun en gert er ráð fyrir að úthluta styrkjum í maí.  Sjóðurinn mun leggja áherslu á að styrkja hvert verkefni myndarlega þannig að stuðningurinn geti skipt sköpum fyrir tilurð og framgang þess.

    vp

    36 stunda námskeið í markvissri þjálfun í list og tækni leikarans  

    Kennd verða undirstöðuatriði Suzuki leikaraþjálfunar þar sem þáttakendur læra líkamlegt æfingakerfi aðferðarinnar. Í tengslum við æfingarnar verður unnið með texta úr Brandi eftir Henrik Ibsen í þýðingu Matthíasar Jochumssonar. Þátttakendur fá markvissa þjálfun í textagreiningu og athöfn með virkri beitingu ímyndunarafls með því að kafa í texta og útfæra hann án skírskotunar til atburðakeðju leikrits eða hefðbundinnar persónusköpunar leikara. Unnið með texta úr Brandi eftir Henrik Ibsen í þýðingu Matthíasar Jochumssonar.   Kenndar verða spunaaðferðir og leikhústungumál Viewpoint aðferðarinnar sem þjálfar einstaklings-og hópsamvinnufærni leikarans í tíma og rými. Unnið verður með Brand  og sjálfvalda nútímatexta.

    Kennarar Pálína Jónsdóttir og Trausti Ólafsson

    Borgarleikhús

    Borgarleikhúsið hýsir á hverju ári a.m.k. tvö verkefni sjálfstæðra leikhópa. Verkefnin eru valin í samvinnu við borgaryfirvöld og stjórn Sjálfstæðu leikhúsanna (SL)

    Samkvæmt samkomulagi Leikfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar skal Leikfélag Reykjavíkur "tryggja hið minnsta tveimur öðrum leikflokkum afnot af húsnæði í Borgarleikhúsinu til æfinga og sýninga eins verkefnis á hverju ári. Leikflokkarnir skulu hafa endurgjaldslaus afnot af húsnæði en greiða útlagðan kostnað L.R. vegna vinnu þeirra í Borgarleikhúsinu.”

    Samkvæmt ofangreindu er hér með auglýst eftir umsóknum leikhópa vegna leikársins 2011/2012.

    edda_2011

    Í dag voru kynntar tilnefningarnar til Edduverðlaunanna 2011 í Bíó Paradís. 

    Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Gamla bíói hinn 19. febrúar næstkomandi.

    Tilnefningar til verðlaunanna eru eftirfarandi;

    FÍL_logo

     

    Aðalfundur FÍL verður haldinn mánudaginn 7. febrúar 2011 kl. 16.15 í Iðnó - upp í gula sal.

     

    Dagskrá fundarins var póstlögð til félagsmanna föstudaginn 28. janúar sl.

    kelir

    Leikarar óskast!

    Ertu leikari í hlutverki verkefna- og viðburðastjórans? Starfar þú sjálfstætt að hinum ýmsu verkefnum og viðburðum? Þarftu að kljást við kynningar- og markaðsmál? Og finnst þér þú ekki hafa þá reynslu og þekkingu sem til þarf? Þá gæti Trompið verið eitthvað fyrir þig.

    Helga_B

     

     

    Helga Bachmann lést 7. janúar sl. 

     

    Hún verður jarðsett þriðjudaginn 18. janúar kl. 15.00 frá Dómkirkjunni.

    áheyrnarprufa

     

    Málþing um menningarstefnu

     

    Í tengslum við aðalfund BÍL verður haldið í málþing um menningarstefnu, sem fram fer í Iðnó við Tjörnina

    laugardaginn 22. janúar kl. 15:00 – 17:00. 

    Helga_B

    Helga Bachmann leikkona og leikstjóri lést í gær, föstudaginn 7. janúar, 79 ára að aldri.

    Helga fæddist hinn 24. júlí árið 1931 í Reykjavík. Hún var gift Helga Skúlasyni leikara og leikstjóra en hann lést árið 1996. Saman áttu þau börnin Hallgrím Helga, Skúla Þór og Helgu Völu. Fyrir hjónaband átti Helga dótturina Þórdísi Bachmann.

    Helga stundaði nám í skóla Lárusar Pálssonar og starfaði síðan með Leikfélagi Reykjavíkur í um aldarfjórðung.  Meðal stærstu hlutverka hennar á því tímabili voru; Dísa í Galdra-Lofti Jóhanns Sigurjónssonar, Halla í Fjalla-Eyvindi sama skálds, titilhlutverkin í Heddu Gabler Ibsens og Antígónu Sófóklesar, Úa í Kristnihaldi undir Jökli Halldórs Laxness og Alís í Dauðadansi Strindbergs.

    22.12.2010
    jólamynd

    Við óskum ykkur gleðilegra jóla, hamingju og heilla í lífi og listum á komandi ári.

    Þökkum samskiptin á árinu sem senn er liðið

    Munið eftir jólaballinu þann 30. des. í Þjóðleikhúskjallarnum frá kl. 16.00 - 18.00

     Stjórn Félags íslenskra leikara

    Skapandi_listir

    Á fundi sem haldinn var í Bíó Paradís þann 1. desember sl. voru  birtar niðurstöður rannsóknarverkefnis sem unnið hefur verið að í samvinnu fimn ráðuneyta og Íslandsstofu að frumkvæði samstarfsvettvangs skapandi greina. Meginniðurstöður verkefnsins eru þær að skapandi greinar séu burðarstoð í íslensku atvinnulífi. Hér fer á eftir fréttatilkynning aðstandenda verkefnisins:

    Undirstöðuatvinnuvegur kemur í ljós

    °   Skapandi greinar eru einn af undirstöðu atvinnuvegum þjóðarinnar
    °   Virðisaukaskattskyld velta í greininni nam 191 ma.kr. árið 2009
    °   Tæp 6% vinnuaflsins starfa við skapandi greinar

    Prologus

    Prologos veitir tvo handritsstyrki og þrjá styrki vegna leiksmiðjuverkefna

    Gífurlegur fjöldi umsókna barst í Leikritunarsjóðinn Prologos að þessu sinni, en alls bárust 65 umsóknir frá 59 aðilum, og hafa umsóknir í sjóðinn aldrei verið fleiri. Nú er úthlutað úr sjóðnum í sjötta sinn, og hljóta tveir höfundar handritsstyrki og þrír aðilar styrki vegna leiksmiðjuverkefna. 

    Ívar

    Fyrsta sólóplata Ívars Helgasonar er komin út - Jólaljós

    Ívar verður með útgáfutónleika í Salnum í Kópavogi föstudaginn 19. nóvember kl. 20.00 og hefur hann fengið í lið með sér einvala lið tónlistarmanna til að flytja lögin af plötunni. Ásamt Ívari verða Agnar Már píanó & Hammond-orgel, Andrés Þór gítar, Birgir Bragason bassi, Erik Qvick trommur & slagverk, Sigurður Flosason blástur, Hjörleifur Valsson og Helga Steinunn leika á fiðlur og Örnólfur Kristjánsson á selló. Hrafnhildur Blomsterberg stjórnar Flensborgarkórnum.

    LHÍ

    Starf deildarforseta leiklistar- og dansdeildar auglýst laust til umsóknar.

    Listaháskóli Íslands auglýsir eftir umsóknum um starf deildarforseta leiklistar- og dansdeildar. Umsækjandi skal vera leiklistar- eða danslistamaður með mikilsverða reynslu af störfum í atvinnuumhverfi sviðslista. Það skilyrði er sett að viðkomandi hafi meistaragráðu eða sambærilega háskólagráðu í greininni.
    Um deildarforseta segir í skipulagsskrá skólans:”Yfirstjórn hverrar deildar er falin deildarforseta. Störf deildarforseta skulu auglýst laus til umsóknar til allt að þriggja ára í senn. Rektor ræður deildarforseta að höfðu samráði við stjórn.”  Sérstök dómnefnd dæmir um hæfi umsækjenda sbr. reglur skólans um veitingu akademískra starfa. Ráðningin gildir frá 1. ágúst 2011.

    Völuspá

    Möguleikhúsið sýnir verðlaunasýninguna  VÖLUSPÁ  eftir Þórarin Eldjárn í menningarmiðstöðinni Gerðubergi miðvikudaginn 10. nóvember kl. 20:00

    Völuspá var frumsýnd í Möguleikhúsinu á Listahátíð í Reykjavík vorið 2000 en er nú tekin til sýninga á ný eftir nokkurra ára hlé.. Sýningin var tilnefnd til menningarverðlauna DV fyrir árið 2000 og hlaut Grímuna - íslensku leiklistarverðlaunin 2003. Aðeins verður um þessa einu sýningu að ræða í Gerðubergi að þessu sinni og því einstakt tækifæri til að sjá þessa rómuðu sýningu. 

    Danskur_skóli

    The Danish National School of Theatre and Contemporary Dance seeks Head of Acting Department    Do you want to influence the next generation of professional actors in Denmark?  The Head of the Acting Department stops after 10 years and we are looking for his successor.    Read more here (in Danish)  http://www.teaterskolen.dk/index.php?id=617

    Velkomin í Listaháskólann – listkennsludeild.    

    KENNARI, LEIÐTOGI OG VERKEFNASTJÓRI – framhaldsnám fyrir listamenn
    Nám í listkennsludeild er fjölbreytt, skemmtilegt og praktískt nám fyrir alla listamenn.

    Opið hús í Laugarnesinu laugardaginn 13. nóvember milli kl: 11 og 16.

    Selma_kántrý

    ÚTGÁFUTÓNLEIKAR SELMU BJÖRNS OG MIÐNÆTURKÚREKANNA VERÐA HALDNIR Í SALNUM ÞANN 21. NÓV NK. KL 20 . ÞAR MUNUM VIÐ FLYTJA LÖG AF NÝJA DISKNUM OKKAR , ALLA LEIÐ TIL TEXAS, SEM INNIHELDUR FRÆGA KÁNTRÍSMELLI MEÐ DOLLY PARTON, PATSY CLINE, JUNE CARTER OG JOHNNY CASH OFL SEM VIÐ HÖFUM LÁTIÐ ÍSLENSKA. EINNIG MUNUM VIÐ FLYTJA AÐRA ÞEKKTA KÁNTRÍSMELLI EINS OG NINE TO FIVE, JOLENE, ISLANDS IN THE STREAM, RING OF FIRE OFL OFL .

    Hetja

    HETJA

    Höfundur/Leikari: Kári Viðarsson
    Leikstjóri: Víkingur Kristjánsson

    Landnámssetrið í Borgarnesi og aðstandendur gamanleiksins HETJA bjóða félögum í FÍL afslátt af miðum á tvær sýningar.  Sýningarnar eru 13. og 26. nóvember og hefjast klukkan 20.00. Fullt miðaverð er 2500 kr. en félagar í FíL fá miðann á litlar 1500 kr.

    Tjarnarbíó

    Fjölskyldusýningar í Tjarnarbíó á Sunnudögum

    Tjarnarbíó ætlar að vera með eitthvað fyrir fjölskylduna alla sunnudaga í nóvember og desember.  Sirkus Íslands sýnir Sirkus Sóley næstu tvær helgar.  Í upphafi aðventu mætir svo Augasteinn í uppsetningu Á senunni aftur í Tjarnarbíó en verkið var frumsýnt þar fyrir 7 árum síðan.  Snuðra og Tuðra á vegum Möguleikhússins ætla líka að líta við í byrjun desember með Jólarósirnar sínar en Algjör Sveppi – dagur í lífi stráks verður svo sýnt á milli jóla og nýárs en það eru allra síðustu sýningar á verkinu í Reykjavík.  Fyrir og eftir sýningar ætla Áslaug og Anna Bogga að bjóða upp á spennandi veitingar í anddyri Tjarnarbíós en þar mun kaffihúsið Majones verða opið alla daga í náinni framtíð. 

    SKRIFSTOFA FÉLAGS ÍSLENSKRA LEIKARA ER LOKUÐ

    Af óviðráðanlegum orsökum er skrifstofa FÍL lokuð fram á mánudag

    Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að skapa en munum sinna erindum sem berast með tölvupósti eins fljótt og auðið er.

    Opnum aftur kl. 09.00 á mánudag.

    Afmæli_Möguleikhússins

    Í tilefni af 20 ára afmæli sínu býður Möguleikhúsið til afmælisfagnaðar fyrir alla fjölskylduna í menningarmiðstöðinni Gerðubergi laugardaginn 16. október kl. 14:00
    Þar koma fram persónur úr nokkrum þeirra barnaleikrita sem Möguleikhúsið er með á dagskránni í vetur með stutt atriði auk þess sem leikritið Langafi prakkari verður flutt í heild sinni.

    Ókeypis er inn á dagskrána svo lengi sem húsrúm leyfir.

    30.09.2010
    mennpress

    • Menningarpressan er fréttasíða sem mun bjóða upp á menningarfréttir og umfjöllun ásamt viðtölum við listamenn og er hluti af Pressan.is. Stefnt  er að því að bjóða einnig upp á gáttir á umfjallanir annarra fjölmiðla sem tengjast menningu.   Að fjölbreyttur fjölmiðill sem sinnir allri listaflórunni og einskorðar sig aldrei við eitt er grundvallaratriði  og gefur forsendur fyrir því að fjölmiðillinn skapi sér hljómgrunn hjá stórum hluta þjóðarinnar.

    Dansverkstæði

    Laugardaginn 2. október nk. fagna danslistamenn með pompi og prakt fyrsta áfanga að danshúsi með opnun   DANSVERKSTÆÐISINS milli kl. 17:00 - 19:00.

    DANSVERKSTÆÐIÐ er við Skúlagötu 28 á 4. hæð.

    Boðið verður uppá léttar veigar og góða skemmtun að hætti dansara.

     

    September

    SEPTEMBER, örverk um sekt og sakleysi sem verður sýnt í beinni útsendingu á www.herbergi408.is kl.12:30 Fimmtudaginn 30.september frá Útgerð Hugmyndahús háskólanna við Grandagarð.  Verkið er níunda örverkið af 12 sem Áhugaleikhúss atvinnumanna býður áhorfendum upp á endurgjaldslaust. Verkin taka á áráttum, kenndum og kenjum sem hafa áhrif á mannlega tilvist í Reykjavík 2010 og eru kennd eftir þeim mánuði sem þau eru flutt í. Viðfang verkanna ræðst af því sem hrærist í samtímanum og hefur áhrif á líf okkar.
    Áhugaleikhúsið veltir nú fyrir sér sekt og sakleysi þjóðarinnar, hlutverki dæmenda og réttlæti dóma.

    Alþjóðleg_Riff

    Alþjóðleg kvikmyndahátíð, RIFF, stendur fyrir dyrum. Hátíðin hefst formlega 23. september og stendur yfir til og með 3. október. Eins og alltaf er heilmikið um að vera: 140 kvikmyndir frá öllum heimshornum eru á dagskrá, ýmsir forvitnilegir fyrirlestrar og sérviðburðir á heimsmælikvarða! Í síðastnefnda flokkinum má nefna palborðsumræður um umhverfismál, sundbíó, málþing um falskar fullnægingar og  hátíðartónleika með Jóhanni Jóhannssyni í Hallgrímskirkju.

    21.09.2010
    Formaður

    Ágætu félagar.

    Það er komið haust, nýtt leikár er hafið hjá stofnanaleikhúsunum og bendir flest til þess að leikárið verði spennandi.  Heyrst hefur að miðasala gangi framar vonum og er gleðilegt til þess að vita að fólk ætli að flykkjast í leikhúsin í vetur.  Þetta sannar enn einu sinni að í kreppunni blómgast leikhúsið. 

    Mikill spenningur er í bransanum yfir opnun Tjarnabíós núna í haust .  Loksins er að koma hús þar sem sjálfstæðir hópar geta kallað sitt hús og ég á von að mikil gróska verði í  grasrótinni á næstu misserum.  Ég fór og skoðaði húsið og kom mér gríðarlega á óvart hversu stórt og rúmgott það er og hentar að mér sýnist, leiklistinni og danslistinni afskaplega vel, allur útbúnaður til fyrirmyndar. 

    09.09.2010
    FÍL_logo

    Vegna jarðarfara verður skrifstofa FÍL lokuð föstudaginn 10. september

    Leiklistarráð


    Auglýst er eftir umsóknum um styrki á árinu 2011 til starfsemi atvinnuleikhópa er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu á fjárlögum.
    Umsóknir geta miðast við einstök verkefni eða samfellt starf til lengri tíma, sbr. 16. gr. leiklistarlaga nr. 138/1998, og verður afstaða tekin til skiptingar fjárins eftir eðli umsóknanna og eftir því sem fé á fjárlögum 2011 í þessu skyni kann að segja til um

    FÍL_logo

    Ágætu félagsmenn

    nú er starfsemin komin á fullt bæði í leikhúsum landsins og hér á skrifstofu FÍL.  Þær breytingar hafa orðið á stjórn félagsins að Björn Ingi Hilmarsson er fluttur til Svíþjóðar með fjölskyldu sinni og í hans stað höfum við fengið inn fyrsta varamanna stjórnar, Jóhönnu Vigídis Arnardóttur og mun hún gegna embætti varaformanns.

    Við þökkum Birni Inga kærlega fyrir góð störf í þágu félagsins í mörg ár og óskum honum velfarnaðar í nýju landi.

    Prologus

    Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum vegna sjöttu úthlutunar úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til og með 13. september 2010, en úthlutað verður í október.

    Leikritunarsjóðurinn Prologos hefur nú starfað við Þjóðleikhúsið í rúm tvö ár og er honum ætlað að efla íslenska leikritun og hvetja til nýsköpunar í leikhúsinu. Óhætt er að segja að sjóðurinn hafi boðið leikhúsfólki mikilsverð tækifæri til að vinna að list sinni, en nú þegar hafa alls fjórtán leikskáld og ellefu leiksmiðjuverkefni hlotið styrk úr sjóðnum. Af þeim verkefnum sem hafa hlotið styrk, hafa átta nú þegar verið sýnd eða eru komin á verkefnaskrá. Þrjú þeirra eru sýnd í Þjóðleikhúsinu í vetur, meðal annars á leiklistarhátíðinni Lókal, og eitt á Reykjavík Dance Festival.

    Lokal

    Nú er tæp vika í að LÓKAL hefjist með pompi og pragt. Það er mikill spenningur í loftinu og miðasala í fullum gangi.

    Við viljum minna ykkur á að hafa hraðar hendur til að missa ekki af þessari einstöku leikhúsveislu!     Vekjum einnig athygli á að enn eru til hátíðarpassar sem veita aðgang að 6 sýningum á aðeins 13.000kr (sem samsvarar 25% afslætti af almennu miðaverði)!

    Nánari upplýsingar er að finna á www.lokal.is

    Dance_Festival

    Hannaðu þína eigin danshátíð!

    Danspassinn á Reykjavík Dance Festival veitir þér aðgang á allar sýningar hátíðarinnar sem verður haldin dagana 1.-5. september.   Dagskrá hátíðarinnar hefur sjaldan verið glæsilegri þar sem boðið verður upp á bæði innlend sem og erlend dansverk. Níu verk verða sýnd á hátíðinni, í öllum tilfellum er um frumflutning á Íslandi að ræða og þar af 5 frumsýningar á nýjum íslenskum verkum. Það er því sannkölluð dansveisla í vændum sem enginn má láta fram hjá sér fara.  Danspassinn er skráður á kennitölu og gildir því aðeins fyrir einn aðila og einungis er hægt  að sjá hverja sýningu einu sinni.  Handhafar passans eru hvattir til að staðfesta á hvaða sýningar þeir vilja koma í síma 857-7455. 

    dans
    Stofnfundur Samtaka um Danshús á Íslandi verður haldinn á Skúlagötu 28 (efstu hæð gömlu Frón kexverksmiðjunnar) fimmtudaginn 12. ágúst kl. 20:00. Á fundinum verða kynntar hugmyndir um Danshús: miðstöð dans á Íslandi og fyrsta áfangann í þeirri vegferð, stofnun DANSVERKSTÆÐIS, vinnustofu fyrir danshöfunda. 

    Öllum áhugamönnum um íslenska dansmenningu er velkomið að gerast stofnfélagar. Sjáumst öll!
    Frí

    Sumarlokun á skrifstofu FÍL
    Við erum farin í frí og lokum frá mánudeginum 28. júní til föstudagsins 20. ágúst.

    Við minnum á að flesta samninga / launatölur má finna ýmist hér á síðunni eða í dagbók félagsmanna.

    Þurfir þú aðstoð eða upplýsingar þá vinsamlegast hafið samband við Randver í síma 896-8939 eða með pósti til rand@mi.is
    Hrafnhildur tekur við bakvakt frá 26. júlí og er með símann 863-7260 netfang hrafnhildur@fil.is eða fil@fil.is

    Hvalfjörður

    Vinnustofa í Hvalfirði til leigu frá ágúst - október
    Húsið er eingöngu leigt til félagsmanna FÍL og félagsmanna aðildarfélaga BÍL - Bandalags íslenskra listamanna.
     
    Þetta hús er í eigu Kjuregej Alexöndru  Argunova, listakonu. Hún er fædd í Jakútíu en býr og starfar hér á Íslandi.
    Ríkisstjórn Jakútíu ákvað á sínum tíma að gefa efni í hefbundið jakútískt hús og lét flytja til Íslands með stuðningi íslenska menntamálaráðuneytisins. Húsið stendur á landi Alexöndru við Maríuhöfn í Hvalfirði. Húsið ber að umgangast með virðingu og natni.

    Húsið skal nota til að skapa LIST og KÆRLEIKA, FRIÐ og VINÁTTU

    Hafnarfjörður

    Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar óskar eftir tilboðum frá leikfélögum/leikhópum um rekstur leikhúss að Strandgötu 50 í Hafnarfirði.

    Hafnarfjarðarbær mun leggja umsækjendum til húsnæði og er leigutími frá 1. september 2010 – 31. desember 2013.  Um er að ræða 743,4  fermetra atvinnuhúsnæði ætlað til leiksýninga og annarrar menningarstarfsemi.

    Í tilboði skal sérstaklega gera grein fyrir markaðs- og  rekstraráætlunum sem og  fyrirhugaðri starfsemi í húsinu og framtíðaráformum.

    Kristbjorg_Kjeld.jpg

    Kristbjörg Kjeld, leikkona var  útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur við hátíðlega athöfn í Höfða þann 17. júní sl.

    Kristbjörg útskrifaðist úr Leiklistarskóla Þjóðleikhússins 1958 og á að baki farsælan listamannaferil sem spannar rúma hálfa öld en Kristbjörg fagnaði 75 ára afmæli þann 18. júní.  

    Í ár hlaut hún Grímuverðlaunin sem besta leikkona í aukahlutverki, fyrir hlutverk sitt í Hænuunganum og hún fékk einnig Edduverðlaunin fyrir hlutverk sitt í Mömmu Gógó fyrr á þessu ári.

    15.06.2010
    menningarnótt

    Menningarnótt  21. ágúst 2010 – Strætin óma!

    Hvað viltu gera og hvar viltu vera á Menningarnótt?

    Menningarnótt verður haldin í fimmtánda sinn þann 21. ágúst næstkomandi. Við hvetjum alla áhugasama til að senda inn hugmyndir og umsókn um þátttöku hið fyrsta.
    Strætin óma er yfirskrift hátíðarinnar í ár. Vertu með og sendu inn hugmynd sem hljómar vel.

    Kedja_logo

    keðjaReykjavík October 8th – 11th 2010

    Dear person or institution/company, interested in the development of and networking within the contemporary dance area
    Registration is now open for the SIXTH keðja encounter. It takes place in Reykjavík, Iceland October 8th – 11th 2010 under the heading “Reach out! Content or form?”

    About keðjaReykjavík
    The main emphasis at keðja Reykjavík,will be placed on the artistic programme together with various other events aimed to show you Icelandic nature, energy and city life, from a different perspective.

    07.06.2010
    Gríman

    TILNEFNINGAR til Grímuverðlauna 2010 voru kunngjörðar í Þjóðleikhúskjallaranum föstudaginn 4. júní. Fimm sýningar hlutu tilnefningar sem sýning ársins; Djúpið, Faust, Fjölskyldan - ágúst í Osage-sýslu, Íslandsklukkan og Jesús litli.

    Grímuhátíðin, árleg uppskeruhátíð sviðslistageirans, verður haldin í áttunda sinn í Þjóðleikhúsinu miðvikudaginn 16. júní og hafa aldrei fleiri frumflutt sviðsverk komið til álita, en þau voru alls 89. Þar að auki komu 7 útvarpsverk til álita.

    FÍL_logo

    Norræna leikararáðið fundar nú í Reykjavík og er Félag íslenskra leikara gestgjafi fundarins að þessu sinni.
    Hér eru staddir formenn og framkvæmdastjórar allra norrænu leikarafélagana nema Færeyja en þeirra fulltrúi forfallaðist á síðustu stundu.
     

    Vegna fundarins er starfsemi skrifstofu FÍL nokkuð skert en við reynum að svara síma og tölvupósti eftir bestu getu.

    Golf

    Fyrsta golfmót listamanna á Íslandi verður haldið á hvítasunnudag,
    23. maí nk. á Nesvelli á Seltjarnarnesi. Mótið er opið öllum félögum í
    fagfélögum listamanna sem aðild eiga að Bandalagi íslenskra listamanna.

    Mótið er punktamót og verða veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin.
    Þá verða bílar í verðlaun fyrir að vera næst holu á par 3 brautum.

    Skapandi_listir

    GETUR ÞÍN SKÖPUN SKIPT SKÖPUM ?
    Þér er boðið  í  ÞANKATANK  um  framtíð hinna skapandi greina á Íslandi laugardaginn 24. apríl n.k. kl. 10:00 – 15:00
    Við kryfjum til mergjar spurningar  á borð við :
    Skipta listir og menning máli við endurreisn og nýsköpun í  íslensku samfélagi?
    Af hverju velur listamaðurinn að starfa innan listanna?
    Hvert er hlutverk listamanna gagnvart meðborgurum sínum?
    Hvert er hlutverk listanna í samfélaginu?
    Er umhverfi hinna skapandi greina ásættanlegt?

    áheyrnarprufa

    Hin árlega áheyrnarprufa FÍL, FLÍ og leikhúsanna verður haldin í Borgarleikhúsinu þann 29. mars nk.

    Áheyrnarprufan er eingöngu fyrir menntaða leikara.  Sendið umsókn á fil@fil.is  meðfylgjandi skal vera ferilskrá, hámark 1 bls.
    Upplýsingar um nafn, síma, netfang, menntun, reynsla, sem og andlitsmynd verða að vera á feriskrá – allt á einu A4 blaði. 

    Vinsamlegast skráið ykkur í síðasta lagi 23. mars – ekki verður tekið við umsóknum sem berast eftir þann dag.
    Sl_listamannalaun
    Styrkir til atvinnuleikhópa 2010
    Alls sóttu 73 aðilar um styrki til 95 verkefna auk sjö umsókna um samstarfssamninga. Á fjárlögum 2010 eru alls 64,9 millj.kr. til starfsemi atvinnuleikhópa. Af þeirri upphæð eru 4,5 millj. kr. eyrnamerktar skrifstofu Sjálfstæðu leikhúsanna og því ekki til úthlutunar. Samtals er úthlutað til einstakra verkefna 36.380 þús. kr. og samtals er úthlutað til samstarfssamninga 22.500 þús.kr.
    Borgarleikhús

    Auglýst er eftir umsóknum leikhópa vegna leikársins 2010/2011   Með umsókn skal senda skilmerkilega greinargerð um verkefnið, greina frá aðstandendum þess, framkvæmdaaðilum, listrænum stjórnendum og þátttakendum öllum ásamt vandaðri fjárhagsáætlun.
     

    Peningar

    Hvar eru peningarnir mínir?
    Fræðslukvöld ÚTÓN um höfundarréttartekjur og samninga verður haldið þriðjudaginn 2. mars frá kl. 19.30-22.00 í Norræna húsinu. Farið verður djúpt ofan í saumana á höfundarréttarsamningum (publishing) og hvað ber að hafa í huga við samningagerð. Skoðuð verða tengsl höfundarréttar og sölu tónlistar í kvikmyndum, sjónvarpi og auglýsingum.

    Horn_á_höfði

    Hið frábæra fjölskylduleikrit Horn á höfði eftir Berg Þór Ingólfsson og Guðmund S. Brynjólfsson verður sýnt á Akureyri um páskana. Verkið var frumsýnt sl. haust í Grindavík við frábærar undirtektir. Áhorfendur og gagnrýnendur voru sammála um að þetta væri eitt skemmtilegasta barnaleikrit ársins. Tónlistin er eftir Akureyringinn Villa Naglbít og eiga lögin úr sýningunni vonandi eftir að hljóma hátt í skíðabrekkunum fyrir norðan um páskana. Sýningar verða í Rýminu og verið sett upp í samstarfi við Leikfélag Akureyrar.
     

    hafið

    Hæ hopp sa sa!
    Það er leikið dansað og sungið í Víkinni- Sjóminjasafni að Grandagarði 8 í tengslum við sýninguna Leiklistin og hafið.

    Sunnudaginn 28.2. kl. 15
    Sunnudaginn 7.3. kl. 15
    Íbúð_í_Róm

    Listamannaíbúð í Róm - umsóknarfrestur


    Circolo Scandinavo í Róm auglýsir eftir umsóknum fyrir tímabilið 1. september 2010 til 31. júlí 2011. Umsóknarfrestur rennur út 1. apríl 2010.

     

    Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar eru á heimasíðunni http://www.skandinaviskforening.org/ansok.htm
     
    Hemingway

    Núna í mars eru tvö námskeið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands sem ættu að vekja áhuga sviðslistamanna.

    Annars vegar er það námskeiðið hennar Hlín Agnardóttur um leikritun og hins vegar námskeið Ástráðs Eysteinssonar um Hemingway.  

    Fjölmörg fleiri áhugaverð námskeið í boði...

     
     
    Árskýrsla_Þjóðleikhússins

    Ársskýrsla Þjóðleikhússins 2009 er komin út  - kraftmikið starf, jákvæður rekstur og fjölgun áhorfenda

    Árið 2009 var í flestum þáttum mjög jákvætt í rekstri og starfsemi Þjóðleikhússins. Fjögur undanfarin ár hefur áhorfendum fjölgað jafnt og þétt og nam fjölgunin ríflega 12% á milli áranna 2008 0g 2009. Alls voru sýnd 27 leikverk á árinu en heildarsýningafjöldi í húsinu var alls 412. Markvissu aðhaldi var beitt á öllum sviðum á árinu og allt kapp lagt á að halda rekstrinum í jafnvægi. Þetta aðhald ásamt góðri aðsókn skilaði jákvæðri rekstrarafkomu auk þess sem eigið fé er jákvætt.
     

    Áhugaleikhús_febrúar

    Áhugaleikhús atvinnumanna frumsýnir FEBRÚAR, Örverk um áráttur, kenndir og kenjar 25.febrúar kl.12:30 (í hádeginu).
    Frumsýningin sem fer fram í nýju Gjörningarými Hugmyndahúss háskólanna, ÚGERÐINNI, Grandagarði 16 2.hæð, verður einnig send beint út í netleikhúsinu  Herbergi 408.
    FEBRÚAR er annað  verkið í 12 verka röð, Örverk um áráttur, kenndir sem hvert um sig tekur á áráttum, kenndum og kenjum sem hafa áhrif á mannlega tivist í Reykjavík 2010. Hvert verk tekur um 5 - 10 í flutningi og verða verkin frumsýnd kl.12:30 síðasta fimmtudag í hverjum mánuði allt árið 2010 og sýnd í beinni útsendingu á veraldarvefnum .
    Viðfang verkanna ræðst af því sem hrærist í samtímanum og hefur áhrif á líf okkar.

    Logo_Þjóðlhús

    Áminning!

    Umsóknar frestur um störf leikara við Þjóðleikhúsið rennur út á mánudaginn næstkomandi - sjá auglýsingu hér að neðan

    Athugið mánudagurinn 22. febrúar....

    19.02.2010
    Lunga

    Hönnuðir, hljómsveitir og listamenn sem vilja koma fram á LungA 2010 gefst hér með tækifæri á að sækja um.

    LungA ( Listahátíð ungs fólks á Austurlandi )  verður haldin á Seyðisfirði dagana 12. - 18. Júlí 2010.

    Umsóknarfrestur er til og með 15. Mars 2010. Allar umsóknir verða skoðaðar og svarað með tölvupósti.

    18.02.2010
    Thorey_Sigthors

    Viltu kynnast þinni eigin rödd betur? Auka hljóm hennar, blæbrigði og úthald?

    Nú í mars mun Þórey Sigþórsdóttir leikkona, radd og leiklistarkennari halda raddnámskeið í samvinnu við Listaháskóla Íslands.  Námskeiðið er hugsað fyrir alla þá sem hafa áhuga á því að kynnast sinni eigin rödd og kanna möguleika hennar, ekki síst fyrir leikara, kennara, leiðsögumenn og alla þá sem nota röddina sem atvinnutæki. Einnig þá sem hafa hugsað sér að sækja um inngöngu í leiklistarskóla hér eða erlendis.

    Johann_Sigurjonsson

    Jóhann Sigurjónsson leikskáld – sígildur eða ekki?

    Leikfélag Reykjavíkur efnir til málþings í Borgarleikhúsinu laugardaginn 20. febrúar og hefst það kl. 11:00 á Litla sviðinu með leiklestri á leikriti Jóhanns, Rung læknir, sem gefið var út í Danmörku 1905.

    Sveinn Einarsson leikstýrir þeim Hilmi Snæ Guðnasyni, Jakobi Þór Einarssyni og Láru Jóhönnu Jónsdóttur.

    menningargatt

    Fréttir frá Norrænu menningargáttinni

    Nýir meðlimir í úthlutunnarnefnd í Menningar og listaáætluninni  /  Stuðningur við listamannasetur   /  Nú getur þú sótt um tengslanetsstyrk  


    Nýjar sýningar í menningargáttinni
     

    Á morgun eftir ár – Darwinísk raf ópera  /  Skemmtana-eyja – ný sýn á sviðslistir  Island  /  Þvert Norrænt Net – tenging milli Norrænna menningarstofnanna

    Rocky

    Leikfélag Akureyrar hefur ákveðið að fresta sýningum á söngleiknum Rocky Horror og frumsýnir verkið 3ja september í hinu glæsilega menningarhúsi Hofi.

    Ástæðurnar eru tvær: Annars vegar velgengni 39 þrepa sem gengur fyrir fullu húsi helgi eftir helgi, og hins vegar of mikill kostnaður við að búa þessari mögnuðu sýningu viðeigandi umgjörð í öðru húsnæði.

    Allar aðstæður í Hofi munu verða eins og best verður á kosið og því mun draumurinn um viðamikla og glæsilega sýningu á Rocky Horror rætast með haustinu og vel það.
     

    STEF

    STEF, Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar, fóru í nóvember 2007 fram á lögbann á skráarskiptisíðunni torrent.is þar sem notendur gátu skipst á hvers kyns margmiðlunarefni og hugbúnaði, svo sem myndböndum og tónlist. STEF vildi meina að með síðunni væri Isotorrent að ýta undir óheimila notkun á höfundarvörðu efni.

    Hlutverkasetur

    Dagana 12.-14. febrúar stendur Hlutverkasetur fyrir vinnustofum um leiklist í sjálfs- og geðrækt.  Á vinnustofunum verður töluð enska en jafnóðum túlkað á íslensku ef þörf krefur.   Stjórnendur: Maria L. Rieder og Trausti Ólafsson.

    Laugardagur 13. febrúar kl. 14.00-17.00:  Hvernig kallast þín innri hlutverk á við hlutverk þín á sviði?    Unnið verður samkvæmt líkani J. L. Moreno um innri og ytri hlutverk. Á sínum tíma sóttu margir þekktustu leikarar Bandaríkjanna leiðsögn til Moreno. Meðal þeirra voru Bette Davies, Joan Crawford og Marlon Brando.  Einkum ætlað leikurum en allt áhugafólk um leiklist er velkomið.
     

    solla

    Á laugardaginn fara fram opnar prufur fyrir hlutverk Sollu stirðu á stórtónleikum Latabæjar og félaga sem verða haldnir í Laugardalshöllinni þann 27. mars.
    Einnig eruk miklar líkur á að leikverk um Latabæ verð sett á svið í náinni framtíð og því er mikið framundan hjá þeirri sem hreppir hlutverkið.
    Skráning í prufurnar fer fram á www.visir.is og prufurnar verða haldnar á laugardaginn 13.febrúar kl. 11.00
     

    Aida

     Föstudaginn 19. febrúar kl. 20 flytja stórsöngvararnir Elín Ósk Óskarsdóttir, sópran, og Jóhann Friðgeir Valdimarsson, tenór, ásamt Hörn Hrafnsdóttur, mezzósópran, valda kafla úr einni ástsælustu óperu allra tíma; Aidu eftir Giuseppe Verdi, í Íslensku óperunni.

    Tekinn er fyrir ástarþríhyrningur aðalsöguhetjanna í óperunni; elskendanna Aidu, Radamesar og Amnerisar, og verða fluttar þekktustu aríur og samsöngvar óperunnar.

    safnanott

    Með sýningunni ÍSLAND::KVIKMYNDIR er í fyrsta skipti dregin upp mynd af þróun kvikmyndagerðar á Íslandi á árabilinu 1904 til 2009.  Sýningin endurspeglar andrúmsloft og umfjöllunarefni íslenskra kvikmynda og á fjórum „kvikmyndaeyjum“ er hægt að horfa á um 100 kvikmyndir að eigin vali í fullri lengd.  Eru myndirnar flokkaðar í leiknar myndir, stuttmyndir, heimildarmyndir og myndir byggðar á bókmenntaverkum. Sýningin er eins og opið skjalasafn þar sem hægt er að fá yfirsýn yfir helstu sérkenni íslenskrar kvikmyndagerðar og upplifa þjóðfélags- og menningarsögu Íslendinga síðustu 100 ár.

     

    orlofshus_FIL

    Eins og vant er verður páskavikunni úthlutað sérstaklega.  Að þessu sinni ber páskafrí leikhúsanna upp dagana 31. mars - 6. apríl.  Vikan kostar kr. 25.000 og er áhugasömum bent á að sækja um dvölina með því að senda tölvupóst á fil@fil.is fyrir 1. mars nk.

    Eddan

    Eddu verðlaunin verða afhent í Háskólabíói laugardaginn 27. febrúar 2010 - Stöð 2 sendir út beint frá athöfninni

    Tilnefningar til Edduverðlaunanna 2010 má sjá hér að neðan og einnig er áhugasömum bent á vefsíðuna http://eddan.is

    Thjodlhus

     

    Þjóðleikhúsið auglýsir stöður leikara lausar til umsóknar.

    Tímabundnar stöður fyrir leikárið 2010-2011 (frá 23.8 til 24.6.) svo og ótímabundnar stöður.

    Um er að ræða 100% störf leikara. Annarsvegar er fyrirhugað að ráða tímabundið í einstök hlutverk í væntanlegum sýningum og hinsvegar til lengri tíma, eins árs eða ótímabundið. Nánar verður samið um upphaf ráðningar í ráðningarsamningi.

    fil_logo.jpg

    Stjórn Félags íslenskra leikara lýsir áhyggjum sínum yfir þróun mála hjá Ríkisútvarpinu. 

    Skyldur RÚV við íslenskan almenning eru ríkar.  Þjónusta RÚV við almenning snýst um að gera íslenskan veruleika sýnilegan og skiljanlegan.  Það er því hlutverk stofnunarinnar að miðla og afla hlutlægra upplýsinga um þau mál sem skipta íslenskt samfélag máli, hvort sem þau snúa að þjóðfélagsmálum, dægurmálum, menntun eða listum. 

    29.01.2010
    Kedja_logo

    Íslenski dansflokkurinn aðili að Keðju tengslanetinu sem er verkefni sem stendur fyrir 6 stórum viðburðum í jafnmörgum borgum og staðið hefur yfir frá 2008.
    Næsti viðburður er 3 – 6. maí n.k.  í Umea í Svíþjóð en sá síðasti verður hér í Reykjavík, í samstarfi fjölmargra aðila - 8. – 11.október 2010.
    Hægt er að sækja um að taka þátt í Keðju í Svíþjóð til 7. febrúar og er það gert á www.kedja.net.  Keðja býður upp á 5 ferðastyrki fyrir Íslendinga.

    Ahugaleikhus_herbergi_408

    Við þökkum frábærar viðtökur vegna frumsýningar Áhugaleikhúss atvinnumanna á fyrsta örverkinu af 12.
    Því miður var hljóðið í útsendingunni gallað og hvetjum við ykkur til þess að skoðu upptöku af verkinu með fullum hljómgæðum í leikhúsinu okkar www.herbergi408.is en það verður aðgengilegt frá og með 29.janúar.

    Moguleikhusid

    Menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkur úthlutaði í dag styrkjum til menningarmála, samtals 62 milljónum króna sem deilast á  91 umsækjanda. Ráðið byggir ákvörðun sína á niðurstöðu fagnefndar sem tilnefnd var af Bandalagi íslenskra listamanna.
    Alls bárust 177 styrkumsóknir vegna ársins 2010 og var samtals sótt um tæpar 275 milljónir. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg hafa undanfarinn áratug jafnframt verið gerðir samstarfssamningar til fleiri ára í senn. Í ljósi fjárhagsástandsins voru þeir hins vegar ekki gerðir nema til eins árs fyrir árið 2009 og ákveðið var að stofna ekki til nýrra langtímasamninga fyrir árið 2010 heldur veita styrki í staðinn.
     

    Bóluhjálmar.jpg

    Barna og unglingaleiksýningu ársins 2009 „Bólu-Hjálmar“ í Þjóðleikhúsinu.
    Stoppleikhópurinn sýnir í ( í kvöld ) miðvikudaginn 27 og fimmtudaginn 28 janúar nk. kl. 20.00 í Þjóðleikhúsinu ( Kúlunni ) verðlaunaleikritið: “Bólu-Hjálmar” en leikritið er byggt á lífi og ljóðum Bólu-Hjálmars.
    (Ath! Aðeins þessar tvær sýningar ).  Sýningin hlaut Grímuverðlaunin sem Barna og unglingaleiksýning ársins 2009.
     

    PM.jpg

    Útvarpsstjóri segi af sér
    Það var húsfyllir á mótmælafundi á Hótel Borg í gærkvöldi sem kvikmyndagerðarfólk efndi til vegna niðurskurðar í rekstri RÚV.

    Þessi fundur fordæmir þann ójöfnuð sem fram kemur í 35% lækkun framlaga til kvikmyndasjóða á fjárlögum 2010 sem er fordæmalaus niðurskurður í íslenskum menningariðnaði.

    Skopp

    Efnt verður til Barnamenningarhátíðar í Reykjavík á vordögum. Hátíðin fer fram víðsvegar um borgina; ofan í sundlaugum, uppi í Esjuhlíðum, á skólalóðum, á öldum ljósvakans og á götum úti.
    Hátíðin fjallar um menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn. Hún getur inniborið matarmenningu og málþing, íþróttir og inniveru, leiklist og listdans og í rauninni alla fleti menningar, bara að það sé skýr tenging við börn og barnamenningu.
    Hátíðin er hugsuð fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri.
     

    27.01.2010
    KH.jpg

     

    Nýr forseti hefur tekið við stjórnartaumunum hjá Bandalagi íslenskra listamanna. 

    Kolbrún Halldórsdóttir, leikstjóri og fyrrverandi ráðherra var kjörin forseti á aðalfundi BÍL nú fyrr í mánuðnum.  

    Stjórn FÍL óskar Kolbrúnu velfarnaðar í starfi og þakkar fyrrum forseta Ágústi Guðmundssyni kærlega fyrir samstarfið.

    Stokkið í sumarfrí

    Sköpun – Viðskipti Andstæður eða samstæður? Námskeiðið er vettvangur fyrir skapandi fólk úr ólíkum greinum; myndlist, leiklist, tónlist, hönnun og veitir tækifæri til þess að horfa á listir með gleraugum viðskipta. Getur myndlistamaður tekið afurðalán? Getur tónlistarmaðurinn lært eitthvað af leikaranum sem gæti nýst til að koma múskinni á framfæri? Er tónlist iðnaður? Hvað felst í orðinu iðnaður?

    Söfnunarátakinu Á rás fyrir Grensás hefur borist frábær liðsstyrkur. Leiksýningin Fúlar á Móti, sem er skipuð 3 helstu gamanleikkonum okkar Íslendinga verður með sérstaka styrktarsýningu til handa átakinu í Loftkastalanum á föstudaginn kemur, þann 28. ágúst. Miðaverðið rennur óskipt til söfnunarinnar
    Bottlefed sýnir verkið Hold Me Until You Break í Iðnó á vegum artFart Hvenær: 26 & 27 Ágúst, Kl: 20:00 Verð: 1500kr Leikarar: Ástþór Ágústsson, Agnes Brekke, Shu-Yi Chin, Rebeca Fernandez Lopez, Catherine Lake, Tom Mitchell, Vala Ómarsdóttir, Irene Wernli Leikstjórn: Kathrin Yvonne Bigler Tónlist: Kobayashi (Philipp Moll: double bass, Lawrence Williams (electronics/sax) Búningar: Natasa Stamatari Ljósahönnuður: Marco Antoni Cifre Quatresols Sviðsmynd: Micha Macher ‘Hold Me Until You Break’ er spunnin sýning um ást og sambönd, þar sem leikarar, lifandi tónlist, hönnun og lýsing gegna jafn mikilvægum hlutverkum. Grundvallarhugmyndin á bak við vinnuna snýst um örþreytu leikaranna, sem kallar fram raunverulegar tilfinningar sem þeir finna í augnablikinu. Verkið sækir styrk sinn jafnt í síbreytileika mannlegra tilfinninga sem og spuna.
    MIÐASALA ER HAFIN Á Horn á höfði FRÁBÆRT BARNA- OG FJÖLSKYLDULEIKRIT MEÐ TÓNLIST EFTIR VILLA NAGLBÍT FRUMSÝNT 11.SEPTEMBER 2009
    Gullkistan bíður félögum FÍL og aðildarfélögum BÍL vikudvöl í fínni íbúð á Laugarvatni og bjarta 60 fm vinnustofu fyrir 30.000 vikuna.
    24.08.2009
    Kæru félagar ég er að leita að húsnæði fyrir tvo listamenn frá Frakklandi sem eru að vinna við Völvu. Tímabilið er frá 6 september til 6 desember og æskilegt er að íbúðin sé í 101 sem næst Þjóðleikhúsinu.
    Vegna forfalla eru nú laust pláss í Nesi listamiðstöð á Skagaströnd í september. Með húsnæðinu fylgir gistiaðstaða og einnig vinnustofupláss í vinnustofum Ness eða stórt herbergi með aðstöðu til skrifa. Að öllu jöfnu þarf að greiða fyrir dvöl í listamiðstöðinni en vegna styrks frá Menningarráði Norðurlands-vestra gefst íslenskum listamönnum nú kostur á að dvelja endurgjaldslaust í Nesi.
    Hvort sem þig vantar stuðning vegna ferðar til Norður- eða Eistrasaltslandanna, vegna verkefnis með Norrænar áherslur, eða vilt koma á eða styrkja tenglsanet við samstarfsaðila á Norðurlöndum, þá getur þú sótt um styrk til Norrænu menningargáttarinnar.
    Sigurveig var meðal brautryðjenda íslenskra óperusöngvara, tók m.a. þátt í óperuflutningi í Þjóðleikhúsinu á árunum 1951-1966 og söng víða sem einsöngvari bæði með kórum eins og t.d. Karlakór Reykjavíkur og Fóstbræðrum eða í samstarfi við aðra söngvara
    Sendið tölvupóst til Randvers á netfangið rand@mi.is og Hrafnhildar á fil@fil.is Hrafnhildur svarar frá 24. júní - 24. júlí í síma 863-7260 Randver svarar frá 27. júlí - 21. ágúst í síma 896-8939
    Dear friends and colleagues, we'd like to invite you to the premiere of ACTION and please forward this invitation to anyone whom might be interested. Premiere on July, 11th 2009 at 9.30 pm Further shows on July, 12th, 13th, 16th, 19th at 8.30 pm and on July, 18th at 9.30 pm Neue Synagoge Berlin, Oranienburger Str. 28-30, 10117 Berlin Tickets: 13,- €, red. 11,- € at 030 40 98 31 95 or tickets@ehrlichearbeit.de Margrét Sara Guðjónsdóttir www.panicproductions.is
    eftirfarandi bréf er frá ITI í Þýskalandi um lát hinnar heimsfrægu Pinu Bausch, sem meðal annars kom með flokk sinn, Tanztheater Wuppertal, með sýninguna Áqua og sýndi í Borgarleikhúsinu í september 2006 við mikla hrifningu:
    19.06.2009
    Ágætu félagar. Gleðilegt sumar og þakkir fyrir viðburðaríkt leikár sem er nú er senn lokið. Það er að frétta hér af skrifstofunni að
    Þriðja úthlutun úr Prologos, leikritunarsjóði við Þjóðleikhúsið, hefur nú farið fram. Alls bárust 53 umsóknir frá 44 aðilum um styrk til að þróa leikhandrit og vinna að leiksmiðjuverkefnum.
    19.06.2009
    Hér með er auglýst eftir áhugasömum, frumlegum og hugrökkum hugmyndasmiðum til að fylla inn í viðburðalandslag Menningarnætur. Sérstök áhersla verður lögð á dagskrá sem fjallar um húsin í bænum, margbreytileika þeirra og sérstöðu, fegurð þeirra og sál. Eins og undanfarin ár verður þó vel tekið á móti öllum skrautlegum og skemmtilegum hugmyndum.
    Undirbúningur fyrir Ástardrykkinn eftir Donizetti er nú kominn á fullt skrið í Íslensku óperunni, en óperan verður frumsýnd þann 25. október næstkomandi
    11.06.2009
    SJÖUNDA Grímuhátíðin, árleg uppskeruhátíð sviðslista verður haldin þriðjudaginn 16. júní.
    Eins og undanfarin á mun skrifstofa FÍL loka á svipuðum tíma og leikhúsin. Við förum í frí þann 24. júní og komum aftur til starfa þann 24. ágúst.
    Döff leiklistarhátíð í Kassanum í Þjóðleikhúsinu á vegum Draumasmiðjunnar. Áhugaverð sýning fimmtudaginn 28 maí kl. 20.00
    Hin árlega ördansahátið verður haldin sunnudaginn 31 maí kl.15.00
    Leikritunarsjóðurinn Prologus auglýsir eftir umsóknum vegna þriðju úthlutunar úr sjóðnum.
    Orðsending frá Atvinnumálanefnd til félagsmanna vegna samnings FIL og SIK.
    Augusto Boal, sá er skrifaði ávarpið í tilefni af Alþjóðlega leiklistardeginum, er látinn. Sjá nánar bréf frá ITI.
    Alþjóðllegi dansdagurinn ,verður haldinn hátíðlegur víðsvegar um land, miðvikudaginn 29.apríl n.k.
    Hægta að sækja um dvöl í sumarbústaðnum á Laugarvatni, fyrir sumarið 2009.
    Ávarp í tilefni af alþjóðlegum leiklistardegi 27. mars. Höfundur Sigrún Edda Björndóttir.
    25.03.2009
    Ávarp á alþjóða leiklistardaginn 27. mars 2009. Þýðandi Hafliði Arngrímsson
    Frétt um leikhús og leikhúsaðsókn frá Hagstofu Íslands
    Fyrsta úthlutun úr nýjum leikritunarsjóði við Þjóðleikhúsið, Prologos, hefur nú farið fram. Alls bárust umsóknir frá 24 aðilum um styrk til að þróa leikhandrit og vinna að leiksmiðjuverkefnum. Ákveðið var að veita tvo styrki til þróunar leikhandrita og tvo styrki vegna leiksmiðjuverkefna. Umsóknarfrestur vegna næstu úthlutunar er til 15. febrúar nk.
    Talía Loftbrú hefur nú verið starfrækt í 3 ár og var hún tilraunaverkefni sem að komu FÍL, FLÍ, Leikskáldafélagið, Reykjavíkurborg, Icelandair og Glitnir. Þegar leitast var eftir áframhaldandi samstarfi þá varð ljóst að Icelandair hafði ekki hug á að taka áfram þátt í verkefninu. Glitnir hætti einnig við þátttöku og þá var ákveðið að setja Talíu á bið og reyna að endurvekja sjóðinn síðar þegar betur áraði í efnahagslífi þjóðarinnar.
    Ágætu félagsmenn FÍL í ljósi efnahagsástandsins, samdráttar og þeirra miklu uppsagna sem nú eru á vinnumarkaði þá þykir okkur ástæða til að benda ykkur á að félagsmenn FÍL eiga rétt á atvinnuleysisbótum missi þeir vinnuna og á það bæði við um launþega og þá sem starfa sjálfstætt, þó mismunandi reglur gildi um hvorn hóp.
    Síðasta umferð Menningargáttarinnar Kulturkontakt Nord er nú opin. Nú er einungis opið fyrir ferða og dvalarstyrki. Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt til Menningargáttarinnar fyrir 5. nóvember 2008.
    Danssýningin Love always, Debbie and Susan eftir Steinunni Ketilsdóttur og Brian Gerke vann til fyrstu verðlauna danskeppninnar Danssolutions í gær. Verkið var valið í undanúrslit ásamt 16 öðrum úr hópi 50 umsókna. Eftir spennandi úrslitakvöld fimm verka í gær bar íslenska verkið sigur úr bítum.