Brynjur og Útlagar

    Brynjur og Útlagar eru félagsskapur fólks sem lært hefur leiklist erlendis... sjá nánar hér að neðan!


    Um Brynjur

    Leikkonurnar Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Þóra Karítas Árnadóttir, Valdís Arnardóttir og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann hittust 21. júní 2008 og héldu óformlegan stofnfund félagsskapar leikkvenna sem lærðu utan landsteina Íslands.  Sá sorgaratburður átti sér stað þann dag að Brynja Benediktsdóttir, leikkona og leikhúsfrömuður, var bráðkvödd. Okkur þótti vel við hæfi að heiðra minningu hennar með því að skíra félagsskapinn "Brynjurnar".


    Tilgangur Brynjanna er að:

       * Efla samstöðu innan stéttarinnar
       * Deila reynslu og atvinnutækifærum
       * Bjóða nýjar leikkonur velkomnar til landsins
       * Eignast samfélag hérlendis í stað þess sem við áttum í námslandi okkar
       * Halda fantagott jólaglögg og árshátíð árlega


    Allar leikkonur/leikhúskonur sem lærðu erlendis eru velkomnar í hópinn og mega endilega bjóða öðrum.

    Í núverandi stjórn eru:

    Bergljót Arnalds
    Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir
    Jana María Guðmundsdóttir
    María Þórðardóttir
    Ragnheiður Steindórsdóttir


    Útlagar - Félaga karleikara sem lært hafa leiklist erlendis.
     
     
    Formaður:
    Finnbogi Þorkell Jónsson s:867-0927
     
    Varaformaður:
    Bjarmar Þórðarson s: 899-6916
     
    Meðstjórnandi:
    Jón Stefán Sigurðsson s: 867-6194
     
    Email Útlaga:
    utlagarutlagar@gmail.com
     
    Sendið okkur línu og bætið okkur við sem vin á Facebook þar verða allar nánari
    upplýsingar. Einnig er áhugasömum að sjálfsögðu velkomið að hringja í stjórnarmenn.
     
    Bkv Útlagar.


    STEFNUSKRÁ
    1. Að opna dyrnar.
    Meginmarkmið félagsins er að taka á móti nýjum félögum sem koma erlendis frá úr leiklistarnámi og veita þeim gagnlegar upplýsingar varðandi leiklistarstarfsemi hérlendis. Upplýsingar um prufur og hvaða verkefni séu í gangi hverju sinni verður komið á framfæri við félagsmenn. Einnig munu eldri félagar deila reynslu sinni, m.a. hvernig standa megi að því að setja upp eigin sýningar eða stofna eigin leikhópa. Félaginu er ætlað að vera tengslanet  sem opnar dyrnar fyrir nýja félaga inn í leiklistarbransann á Íslandi. 


    2. Stuðla að fjölbreytileika
    Með því að auðvelda aðgengi að þeim sem lært hafa fagið erlendis. Flóra íslenskra leikara er mun fjölbreyttari en margan grunar. Þeir sem lært hafa leiklist erlendis, lærðu í mismunandi umhverfi, menningu, skólum með mismunandi áherslur, á mismunandi tungumálum o.s.frv. og hafa því fengið fjölbreytt listrænt uppeldi. Þennan blómlega hóp gerum við aðgengilegan og sýnilegan með stofnun félags sem stuðla mun að góðu samstarfi við alla leiklistartengda aðila. Þar með leggjum við okkar að mörkum til að auka enn frekar á gæði íslenskrar leiklistar.


    3. Félagi heitir Útlagar.
    Stofnendur félagsins eru íslenskir karlleikarar sem lært hafa leiklist erlendis. Við fögnum stofnun Brynjanna, félags leikkvenna sem lærðu erlendis og erum ávallt tilbúnir í samvinnu við þær. Félagið okkar heitir Útlagar og inntökuskilyrði eru ósvikin karlmennska og að menn hafi lært leiklist erlendis.


    4. Útlagar hittast ársfjórðungslega.
    Þá verður farið verður yfir stefnumál, nýir félagar kynntir, hugmyndir og verkefnaskrár þróaðar áfram.  Einnig verða almennar umræður, kosningar um brýn mál og verkefnum sem og ábyrgð dreift. Með því teljast óformlegir fundir, svokallað “mingl”, partý eða pöbbarölt. Það er mikils virði að hittast og hvetja nýja aðila að koma, kraftur samstöðunnar gerir kynningarmál mun auðveldari.


    5. Upplýsing og kynning
    Fer að langmestu leyti í fram í gegnum heimasíðu/facebook, þar sem skýrt mun koma fram hverjir við erum og hver markmið okkar eru og stefnuskrá, ásamt upplýsingum um hvað við erum að gera hverju sinni. Skylda eldri félaga er að hvetja nýútskrifaða leikara til þáttöku, og skulu eldri félagar ávallt vera reiðubúnir í símtal eða kaffi með nýjum Útlögum.


    6. Facebooksíða og heimasíða Útlaga
    Félagið mun gera sig sem aðgengilegast á veraldarvefnum auk þess sem félagsmenn halda minglinu við þar. Stjórnarmenn mun sjá um að uppfæra síðurnar reglulega, dreifa linkum sem víðast, upplýsingar um félagið og markmið okkar verða í forgrunni og einungis Útlagar á síðunni, einnig verða upplýsingar um hvað séu í gangi hverju sinni, prufur, námskeið, sýningar, tenglar inná leiklistartengd efni, kontaktlistar, hugmyndir, umræður og partý!


    7. Listagyðjudýrkun
    Markmiðið skal ávallt vera eitt, að dýrka og þjóna listagyðjunni, óháð eigin egói. Listrænn metnaður okkar liggur í því að félagsmenn þjóni listagyðjunni á heiðarlegan hátt og bendi á það sem betur mætti fara í verkferlum og leikaravali í íslenskri leiklist.