List fyrir alla – umsóknarfrestur til 15. mars nk.

List fyrir alla - Umsóknarfrestur fyrir skólaárið 2021 – 2022 er 15. mars 2021.
Fyrir hverja?
Starfandi listamenn, stofnanir og aðra þá er sinna barnamenningu á einhvern hátt.
Til hvers?
Hlutverk List fyrir alla er að styðja við verkefni á sviði barnamenningar fyrir grunnskólabörn. Til barnamenningar teljast vekefni á sviði lista og menningar sem unnin eru fyrir börn og/eða með virkri þátttöku barna.
Markmið er að jafna aðgengi grunnskólabarna að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.
Leitast er við að gera allar listgreinar sýnilegar innan verkefnisins eins og kostur er. Listverkefnin skulu í öllum tilfellum vera unnir af fagfólki og bestu mögulegu gæðum.