Stofnfundur fyrir fagfélag lista- og menningarstjóra á Íslandi verður haldinn laugardaginn 5. maí 2012 í Tjarnarbíó milli 13:00 og 15:00
– – –
Allir sem hafa starfað við lista- og menningarstjórnun sem og þeir sem hafa lokið námi í menningarstjórnun (að meistaraverkefni undanskyldu) eða svipuðum greinum eiga fullt erindi í slíkt fagfélag og eru hvattir til að mæta
Þeim sem hafa hug á að bjóða þig fram til stjórnarsetu er bent á að senda póst á netfangið annaleif@gmail.com
Allar almennar fyrirspurnir má senda til Sunnu (sunnajona@gmail.com)
Sjá einnig: http://www.facebook.com/events/272159616207331/
Lesa meira...![]() |
Ávarp Maríu Kristjánsdóttur,leikhúsfræðings, á alþjóðlega leikhúsdeginum, 27.mars, 2012 að beiðni Leiklistarsambands Íslands
„Verið velkomin í leikhúsið og slökkvið vinsamlegast á farsímanum“. Þessi hefðbundnu orð, sem hljóma nú í upphafi hverrar leiksýningar, eru lausnarorð. Þau skapa ráðrúm til að aftengja sig frá nútíma nauð. Þau skapa þögn og í þögninni gangast leikendur og áhorfendur undir það samkomulag sem þeir gerðu sín í millum fyrir öldum og aldrei hefur verið skráð á nokkurt blað: Innilokuð í rými ætlum við að eiga stund saman, taka okkur stöðu andspænis hvert öðru, bregðast hvert við öðru. Þannig ætlum við saman að skapa nýjan þykjustu heim og gefa honum merkingu.
Lesa meira...![]() |
Hin árlega áheyrnarprufa FÍL, FLÍ og leikhúsanna verður haldin á stóra sviði Þjóðleikhússins miðvikudaginn 28. mars nk.og hefst kl. 13.00
Áheyrnarprufan er eingöngu fyrir menntaða leikara. Sendið tilkynningu um þátttöku til fil@fil.is í síðasta lagi 25. mars
Þátttakendur hafa til umráða 2 mínútur hver og hafa frjálst val um hvað þeir fara með innan þessa tímaramma. Fyrir þá sem velja að syngja verður undirleikari á staðnum. Skráningu skulu fylgja upplýsingar um nafn, síma, netfang, menntun
Áhugasamir vinsamlegast skái sig í síðasta lagi 25. mars – ekki verður tekið við umsóknum sem berast eftir þann dag.
Lesa meira...Árleg áheyrnarprufa FÍL og leikhúsanna verður haldin miðvikudaginn 28. mars nk. í Borgarleikhúsinu.
Auglýsing um nánari tilhögun verður send út fljótlega!
Lesa meira...Orlofssjóður auglýsir eftir umsóknum frá félagsmönnum um dvöl í bústað félagins um páskana.
Vikan er eins og páskafrí leikhúsanna eða frá og með 4. apríl til og með 10. apríl 2012
Áhugasamir sendið okkur línu á fil@fil.is - úthlutað verður mánudaginn 19. mars 2012
Lesa meira...Leikskáld Borgarleikhússins
Stjórn sjóðsins velur höfund úr hópi umsækjenda sem býðst eins árs samningur við Borgarleikhúsið. Laun sem eru greidd mánaðarlega taka mið af starfslaunum listamanna. Skáld skal þegar hafa sýnt árangur við skáldskap en reynsla af leikritun er ekki skilyrði. Skáldið fær aðstöðu í leikhúsinu, vinnur þar á samningstímanum og verður hluti af starfsliði Borgarleikhússins og mun njóta aðstoðar, leiðsagnar og stuðnings leikhússtjóra og leiklistarráðunauta. Stefnt er að því að velja skáld sem er líklegt til að njóta góðs af aðstöðu sinni hjá leikhúsinu.
Lesa meira...

